{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fuglaflensuveirur (H5) hefur nú verið greind í sýnum sem tekin voru úr heimilishænum á bænum Reykjum á Skeiðum 15. apríl síðastliðinn og rannsökuð á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Hænurnar voru með sjúkdómseinkenni sem bentu sterklega til að um fuglaflensu væri að ræða. Auk þess hafði fuglaflensa greinst í hrafni sem fannst dauður á bænum nokkrum dögum áður. Sýnin verða rannsökuð nánar á rannsóknarstofu erlendis m.a. hvað meinvirkni varðar og er niðurstöðu að vænta í næstu viku.\r\n\r\n„Talið er nokkuð víst að hænurnar hafi smitast af villtum fuglum. Litlar líkur eru taldar á að smit hafi borist frá hænunum í aðra alifugla en Matvælastofnun mun kanna það nánar og mikilvægt er að eigendur alifugla á svæðinu fylgist vel með fuglunum sínum og tilkynni án tafar til Matvælastofnunar ef þeir verða varir við sjúkdómseinkenni eða dauða,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun.",
"innerBlocks": []
}
Fuglaflensa greindist í heimilishænum - Skessuhorn