
Samkvæmt könnun HMS hafa 98% heimila reykskynjara. Ljósm. hms.is
Almennt er góð staða brunavarna á heimilum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nýlega lét brunavarnasvið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar framkvæma könnun á stöðu brunavarna á heimilum landsmanna. Spurt var um brunavarnir á heimilum, flóttaleiðir og annað sem snýr að brunavörnum heimilisins. Í ljós kom að 98% svarenda eru með reykskynjara, 86% með slökkvitæki og 75% með eldvarnarteppi. Þá eru 54% með þrennar brunavarnir á heimilinu, 29% tvennar brunavarnir og 12% eina brunavörn.\r\n\r\n„Niðurstöðurnar gefa til kynna að brunavarnir eru góðar á mörgum heimilum sem er ánægjulegt að sjá. Það er jákvætt að fólk hugar að ástandi brunavarna heima fyrir og sé meðvitað um flóttaleiðir og aðgengi að slökkvitækjum. Þá kemur fram í tilkynningu frá HMS að dagur reykskynjarans, 1. desember, sem er átak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hefur verið árangursríkt átak í gegnum árin.",
"innerBlocks": []
}