
Gamla sýslumannshúsið á Sauðafelli. Ljósm. gj.
Sagan býr á Sauðafelli
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sauðafell í Miðdölum er merkur staður. Jörðin eins og hún er í dag er hluti af landnámi Erps Meldúnssonar hins stórættaða leysingja Auðar djúpúðgu. Á Sauðafelli bjó Sighvatur Sturluson og síðar sonur hans Sturla Sighvatsson ásamt konu sinni Solveigu Sæmundsdóttur. Talið er að mikið virki hafi staðið í landi Sauðafells á Sturlungaöld og þangað var farin svokölluð Sauðafellsför árið 1229. Jón biskup Arason var handtekinn í kirkjunni á Sauðafelli 1550 eftir byssubardaga við flokk Daða í Snóksdal. W.G. Collingwood málaði þar í lok 19. aldar og Muggur í upphafi 20. aldar. Björn Bjarnarson sýslumaður bjó á jörðinni frá 1891 til 1915. Hann var stofnandi Listasafns Íslands og var þingmaður Dalamanna um skeið. Björn byggði glæsilegt hús á jörðinni á sínum tíma. Það hús hefur nú verið gert upp með myndarlegum hætti og hefur fengið nýtt hlutverk.\r\n\r\n<strong>Húsið endurnýjað</strong>\r\n\r\nÞað eru hjónin Berglind Vésteinsdóttir og Finnbogi Harðarson sem búa á Sauðafelli. Berglind er frá Fellsenda, en fjölskylda Finnboga hefur búið á Sauðafelli í rúm hundrað ár og er hann af fjórðu kynslóð ábúenda. Þau eru með sauðfé, en Finnbogi er auk þess húsasmíðameistari og Berglind sinnir ferðaþjónustunni að mestu. Um hlaðvarpann vappa tvær myndarlegar geitur og fylgjast forvitnar með gestakomum. Blaðamaður Skessuhorns hitti Berglindi og Finnboga í gamla sýslumannshúsinu. Það var byggt 1897 og var orðið mjög lélegt þegar þau byrjuðu að huga að endurgerð þess um 2007, en henni lauk svo haustið 2016. Húsið hafði verið forskalað og nú var það einangrað upp á nýtt og klætt bárujárni. Gluggarnir eru smíðaðir í upprunalegri mynd. Húsið hefur tekið stakkaskiptum. Það er nú reisulegur fulltrúi sögunnar og vekur athygli vegfarenda.\r\n\r\n<em>Sjá viðtal við Finnboga og Berglindi í Skessuhorni vikunnar.</em>",
"innerBlocks": []
}