
Fuglaflensa hefur verið staðfest í þremur villtum fuglum á landinu sem fundist hafa undanfarna daga. Um er að ræða heiðagæs við Hornafjörð, hrafn á Skeiðum í Árnessýslu og súlu rétt við Strandarkirkju við Suðurstandarveg. Þá hafa heimilishænsni á bóndabæ á Skeiðum, þar sem hrafninn fannst, sýnt sjúkdómseinkenni og voru fuglarnir allir aflífaðir um liðna helgi.…Lesa meira








