Fréttir

true

Kalman fagnar sumri með tónleikum í Vinaminni

Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari koma fram á næstu tónleikum Kalman listafélags í Vinaminni á Akranesi á Sumardaginn fyrsta kl. 17. Yfirskrift tónleikanna er; ,,Hljóðs bið ek allar helgar kindir“ en á efnisskránni er tónlist eftir Zoltán Kodály, Giovanni Bottesini, Max Bruch, Árna Egilsson, Karólínu Eiríksdóttur og Þórð Magnússon. Þórir og Ingunn…Lesa meira

true

Fyrsti leikur Skagamanna í kvöld í Bestu deildinni

Íslandsmótið í efstu deild karla, Bestu deildinni, hófst í gær með opnunarleik mótsins þar sem núverandi Íslandsmeistarar Víkings tóku á móti FH og unnu 2-1. Skagamenn eru á meðal þeirra tólf liða sem leika í Bestu deildinni í sumar eftir að hafa bjargað sér á ævintýralegan hátt frá falli í fyrra. Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari…Lesa meira

true

Lýsi dreifðist yfir Neðri Skagann

Íbúar á Neðri Skaganum á Akranesi urðu í gær varir við fituskelli á húsunum þeirra og einnig á bílum og götum. Síðar um daginn kom í ljós að sökudólgurinn var lýsistankur á bak við gamla Heimaskaga sem hafði dreift þó nokkru af lýsi yfir nágrennið og virðist hafa náð alla leið upp á Vitateig og…Lesa meira

true

Sumarsýning Safnahúss Borgarfjarðar

Á morgun, miðvikudaginn 20. apríl, kl. 17, verður opnuð sumarsýning Safnahúss Borgarfjarðar; Hennar voru spor. Sýningarstjóri er Katrín Jóhannesdóttir, textílkennari við Hússtjórnarskólann í Reykjavík. Léttar veitingar verða í boði og allir innilegar velkomnir. Sýningin nefnist „Hennar voru spor – Arfur frá fortíð til framtíðar“ – Sumarsýning Safnahúss Borgarfjarðar úr safnkosti Byggðasafns Borgarfjarðar, Listasafns Borgarness og…Lesa meira

true

Kyrrð og friður við Grunnafjörð

Þessa fallegu vormynd tók Ólafur Óskarsson frá bústað sínum í landi Beitistaða í Leirársveit í gærmorgun. Í stafalogni speglaðist Akrafjallið við botn Grunnafjarðar. Farfuglarnir voru hver af öðrum að mæta á svæðið og lífið allt að kvikna eftir veturinn.Lesa meira

true

Reynir H skellti Skallagrími í Mjólkurbikarnum

Reynir Hellissandi og Skallagrímur úr Borgarnesi áttust við í 1. umferð Mjólkurbikarsins síðasta miðvikudag og fór leikurinn fram á Ólafsvíkurvelli. Björn Óli Snorrason kom heimamönnum yfir strax á fjórðu mínútu og á 23. mínútu varð Skallagrímsmaðurinn Hlöðver Már Pétursson fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Fljótlega í seinni hálfleik minnkaði Pétur Lárusson muninn fyrir gestina…Lesa meira

true

Allar raforkuskerðingar afnumdar

Vatnsstaðan í miðlunarlónum Landsvirkjunar fer hratt batnandi. Í ljósi þess hefur fyrirtækið nú tilkynnt fiskimjölsverksmiðjum og fiskþurrkunum að skerðingar á afhendingu til þeirra séu afturkallaðar. „Þar með lýkur einum erfiðasta vetri í vinnslukerfi Landsvirkjunar, en strax í desember þurfti fyrirtækið að grípa til takmarkana í afhendingu á rafmagni vegna lélegs vatnafars. Nægur snjór er núna…Lesa meira

true

Baldur uppfyllir ekki öryggisþætti nútíma ferja

Í ljósi umfjöllunar um Breiðafjarðarferjuna Baldur í þætti Kveiks í Ríkissjónvarpinu senda sveitarfélögin á sunnanverðum Vestfjörðum, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Í þættinum var ömurlegt ástand skipsins sýnt, bæði hvað varðar öryggismál sem og almennan aðbúnað. Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur hafa ítrekað bent á þá staðreynd fyrir daufum eyrum að Breiðafjarðarferjan Baldur uppfylli ekki…Lesa meira

true

Fjórða umhverfing verður á Vestfjörðum, Ströndum og í Dölum

Á komandi sumri verður fjölmennasta og víðfeðmasta myndlistarsýning sem haldin hefur verið á Íslandi opnuð. Sýningin ber heitið Nr4 Umhverfing og er hún sú fjórða í röðinni sem Akademía skynjunarinnar stendur fyrir, en áður hefur hún staðið fyrir sýningum á Sauðárkróki (2017), Fljótsdalshéraði (2018) og á Snæfellsnesi (2019). Auglýst var eftir þátttöku myndlistarmanna sem starfa…Lesa meira

true

ÍA komið í úrslit Lengjubikarsins

ÍA og Sindri mættust í gær í undanúrslitum í C deild kvenna í knattspyrnu og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Erna Björt Elíasdóttir kom Skagastúlkum á blað strax á annarri mínútu en á 21. mínútu jafnaði Samira Suleman metin fyrir gestina og staðan því jöfn í hálfleik. Unnur Ýr Haraldsdóttir kom ÍA aftur yfir eftir…Lesa meira