Fiskimjölsverksmiðja Brims á Akranesi hefur á loðnuvertíðinni í vor verið keyrð með olíu.

Allar raforkuskerðingar afnumdar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vatnsstaðan í miðlunarlónum Landsvirkjunar fer hratt batnandi. Í ljósi þess hefur fyrirtækið nú tilkynnt fiskimjölsverksmiðjum og fiskþurrkunum að skerðingar á afhendingu til þeirra séu afturkallaðar. „Þar með lýkur einum erfiðasta vetri í vinnslukerfi Landsvirkjunar, en strax í desember þurfti fyrirtækið að grípa til takmarkana í afhendingu á rafmagni vegna lélegs vatnafars. Nægur snjór er núna á hálendinu eftir mikla úrkomu í vetur. Hlýindi og rigning á landinu í lok mars og nú aftur um páskana hefur skilað hluta snævarins inn í miðlunarlónin.  Þetta er að gerast tiltölulega snemma vors. Horfur um fyllingu miðlunarlóna er góð, en jökulbráðnun seinni hluta sumars ákvarðar hvort þau nái að fyllast alveg í haust,“ segir í tilkynningunni.",
  "innerBlocks": []
}
Allar raforkuskerðingar afnumdar - Skessuhorn