{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari og Ingunn Hildur Hauksdóttir píanóleikari koma fram á næstu tónleikum Kalman listafélags í Vinaminni á Akranesi á Sumardaginn fyrsta kl. 17. Yfirskrift tónleikanna er; ,,Hljóðs bið ek allar helgar kindir“ en á efnisskránni er tónlist eftir Zoltán Kodály, Giovanni Bottesini, Max Bruch, Árna Egilsson, Karólínu Eiríksdóttur og Þórð Magnússon.\r\n\r\nÞórir og Ingunn tefla fram þessari óvenjulegu blöndu hljóðfæra í verkum sem ýmist eru samin fyrir þessa samsetningu eins og Rhapsodia Þórðar, Völukvæði Árna og Fantasia Bottesinis eða Gradus ad Profundum sem samið er fyrir einleiksbassa og Kol Nidrei sem og Epigrammák sem eru aðlöguð þessum hljóðfærum. Kontrabassinn hefur sótt í sig veðrið undanfarna áratugi sem einleikshljóðfæri en verður að teljast enn frekar óþekkt í íslenskri tónlistarflóru. Ingunn og Þórir vilja bæta úr því en samstarf þeirra hófst árið 2012 þegar þeim var boðið að spila á alþjóðlegri ráðstefnu kontrabassaleikara í Kaupmannahöfn.\r\n\r\nTónleikarnir njóta styrks úr Tónlistarsjóði. Aðgangseyrir er kr. 3.000 en 2.500 kr. fyrir Kalmansvini. Aðgangur er ókeypis fyrir nemendur Tónlistarskóla Akraness.\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
"innerBlocks": []
}
Kalman fagnar sumri með tónleikum í Vinaminni - Skessuhorn