
Skagastúlkur að ræða málin í leiknum gegn Sindra. Ljósm. sas
ÍA komið í úrslit Lengjubikarsins
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "ÍA og Sindri mættust í gær í undanúrslitum í C deild kvenna í knattspyrnu og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Erna Björt Elíasdóttir kom Skagastúlkum á blað strax á annarri mínútu en á 21. mínútu jafnaði Samira Suleman metin fyrir gestina og staðan því jöfn í hálfleik.\r\n\r\nUnnur Ýr Haraldsdóttir kom ÍA aftur yfir eftir tæplega klukkutíma leik en Samira Suleman skoraði sitt annað mark fyrir Sindra þegar korter var eftir af leiknum og þar við sat, lokatölur 2-2.\r\n\r\nTil að ná fram úrslitum fóru liðin í vítaspyrnukeppni og þar hafði ÍA betur, 3-1 og samanlagt 5-3. Í hinum leik undanúrslitanna léku lið Gróttu og Völsungs og þar náðu norðanstúlkur sigri, lokatölur 2-3 fyrir Völsungi. Það er því ljóst að ÍA og Völsungur munu mætast í úrslitaleik en þessi lið voru saman í riðli 2 og þar sigraði ÍA þann leik örugglega 3-0 í byrjun þessa mánaðar.\r\n\r\nÚrslitaleikur ÍA og Völsungs fer fram næsta föstudag og hefst klukkan 19. Ekki er enn komið hvar leikurinn fer fram.",
"innerBlocks": []
}