Guðmundur, Ingibjörg og Sævar við málverkið. Ljósm. af vef Akraneskaupstaðar

Akraneskaupstaður fær málverk að gjöf

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í tilefni 80 ára afmælis Akraneskaupstaðar á þessu ári færðu hjónin Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir og Guðmundur Ragnar Guðmundsson, eigendur Prentmets Odda, kaupstaðnum að gjöf mynd af Bíóhöllinni á Akranesi eftir listamanninn Baska, Bjarna Skúla Ketilsson.\r\n\r\nFram kemur á vefsíðu Akraneskaupstaðar að Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri hafi tekið við málverkinu fyrir hönd bæjarins og þakkað þeim hjónum fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Sævar sagði við það tilefni að það væri mjög skemmtilegt að fá þetta málverk af Bíóhöllinni þar sem hún hafi verið byggð sama ár og bærinn hlaut kaupstaðarréttindi árið 1942. Einnig sagði Sævar að Bíóhöllin hafi verið fastur samastaður fyrir hinar ýmsu sviðslistir sem bæjarbúar hafi notið í gegnum árin.",
  "innerBlocks": []
}
Akraneskaupstaður fær málverk að gjöf - Skessuhorn