Fuglaflensa staðfest hér á landi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fuglaflensa hefur verið staðfest í þremur villtum fuglum á landinu sem fundist hafa undanfarna daga. Um er að ræða heiðagæs við Hornafjörð, hrafn á Skeiðum í Árnessýslu og súlu rétt við Strandarkirkju við Suðurstandarveg. Þá hafa heimilishænsni á bóndabæ á Skeiðum, þar sem hrafninn fannst, sýnt sjúkdómseinkenni og voru fuglarnir allir aflífaðir um liðna helgi. Sýni hafa verið tekin úr hænsnunum og er beðið niðurstöðu rannsóknar. Fram kemur í tilkynningu frá Matvælastofnun að fuglaflensuveiran sem staðfest hefur verið í villtum fuglum sé af gerðinni H5. Meinvirkni veirunnar er ekki þekkt. Beðið er niðurstaðna frekari greiningar frá erlendum rannsóknarstofum.",
  "innerBlocks": []
}
Fuglaflensa staðfest hér á landi - Skessuhorn