Hannes Hólmsteinn fjallar um stjórnspeki Snorra

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þriðjudaginn 19. apríl kl. 20 flytur Hannes H. Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti. Ber hann yfirskriftina: „Stjórnspeki Snorra Sturlusonar“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði“, er öllum opinn og er aðgangur ókeypis.\r\n\r\nHannes skipaði Snorra Sturlusyni fremst í tveggja binda rit sitt, Twenty-Four Conservative-Liberal Thinkers, sem kom út árið 2020. Í fyrirlestri sínum mun hann setja fram túlkun sína á Snorra sem stjórnmálamanni, sem hann telur frumkvöðul frjálslyndrar íhaldsstefnu.\r\n\r\nHannes lauk prófum í sögu og heimspeki frá Háskóla Íslands og doktorsprófi í stjórnmálafræði frá Oxford-háskóla. Nýjustu rit hans eru Twenty-Four Conservative-Liberal Thinkers, I–II (Brussels: New Direction, 2020), Bankahrunið 2008: Útdráttur úr skýrslu (Reykjavík: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, 2021) og Communism in Iceland, 1918–1998 (Reykjavík: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands, 2021).\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
  "innerBlocks": []
}
Hannes Hólmsteinn fjallar um stjórnspeki Snorra - Skessuhorn