default

Yfirkjörstjórn Akraness skipuð vegna kosninganna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á bæjarstjórnarfundi Akraness í gær voru samþykktar tilnefningar um skipan í yfirkjörstjórn Akraness vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Aðalfulltrúar eru þau Geir Guðjónsson frá Samfylkingunni, Valdimar Axelsson frá Sjálfstæðisflokknum og Karitas Jónsdóttir frá Framsókn og frjálsum. Varafulltrúar eru Ingibjörg Valdimarsdóttir, (S) Brynjar Sigurðsson (D) og Hlini Baldursson (B).\r\n\r\nÞá segir í fundargerð að Bæjarstjórn Akraness veiti bæjarráði fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi. Bæjarstjórn samþykkti jafnframt að fela bæjarráði ákvörðun um greiðslur til yfirkjörstjórnar, undirkjörstjórna og annarra starfsmanna sem koma að framkvæmd kosninganna.",
  "innerBlocks": []
}
Yfirkjörstjórn Akraness skipuð vegna kosninganna - Skessuhorn