
Grafan mætt til að fjarlægja grjótið sem vó um fimm tonn. Ljósm. tfk.
Grjóthrun úr Búlandshöfða
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Grjóthrun varð úr Búlandshöfða á Snæfellsnesi síðdegis í gær. Vegagerðin fékk tilkynningu frá vegfarendum og fór starfsmaður hennar á vettvang og sá strax að kalla þyrfti til stórvirka vinnuvél til að fjarlægja ferlíkið. Áætluð þyngd þess var rétt undir fimm tonnum og þykir mikil mildi að enginn hafi verið á ferð þegar það féll. Guðjón Hrannar Björnsson hjá Vegagerðinni mældi grjótið og var ummálið um sjö metrar. Vigfús Þráinn Bjarnason hjá verktakafyrirtækinu B. Vigfússyni ehf brást skjótt við og kom aðvífandi á gröfu og var snöggur að fjarlægja grjótið svo að umferð gæti gengið hindrunarlaust.",
"innerBlocks": []
}