Fréttir

true

Íbúalistinn í Hvalfjarðarsveit mun ekki bjóða fram í vor

Íbúalistinn í Hvalfjarðarsveit var að senda frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að listinn muni ekki bjóða fram fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þar með hafa allir núverandi listar sem átt hafa fulltrúa í sveitarstjórn sagt sig frá framboði, en áður höfðu Á listi Áfram Hvalfjarðarsveit og H listi gert slíkt hið sama. Íbúalistinn hefur…Lesa meira

true

Lengjubikarnum að ljúka hjá liðunum af Vesturlandi

Víkingur Ólafsvík tók á móti ÍR á laugardaginn í riðli 1 í B deild karla í Lengjubikarnum í knattspyrnu og fór leikurinn fram á Ólafsvíkurvelli. Arnór Siggeirsson kom heimamönnum yfir á 22. mínútu og mínútu fyrir hálfleik bætti Kristófer Daði Kristjánsson við öðru marki fyrir Víking. Pétur Hrafn Friðriksson minnkaði muninn fyrir ÍR tíu mínútum…Lesa meira

true

Einstakur apríl er nýtt slagorð fyrir félag barna með einhverfu

Samtökin sem áður eru þekkt sem Blár apríl – Styrktarfélag barna með einhverfu, hafa staðið fyrir sýnileikaherferð fyrir einhverfu síðasliðin níu ár. Í ár kveður við nýjan tón og ásýnd hjá félaginu, það leggur bláa litinn á hilluna og tekur upp nafnið Einstakur apríl. Merki félagsins fékk einnig yfirhalningu, merkið er nú í öllum regnbogans…Lesa meira

true

Tímabundin aukning starfslauna til yngri listamanna

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar og viðskiptaráðherra, mælti í síðustu viku fyrir frumvarpi um tímabundna fjölgun starfslauna til handa sviðslistafólki og tónlistarflytjendum. Nánar tiltekið er um að ræða, breytingu á lögum um listamannalaun, nr. 53/2009. Með frumvarpinu er lagt til að starfslaunum listamanna í gegnum launasjóð sviðslistafólks verði fjölgað um 50 og þau viðbótarmánaðarlaun sérstaklega skilyrt…Lesa meira

true

Ívilnun aukin til að fjölga rafbílum

Stjórnvöld hafa lagt til að fjölga rafmagnsbílum sem geta fengið ívilnun í formi niðurfellingar virðisaukaskatts úr 15.000 bílum í 20.000. Frumvarp þar að lútandi hefur verið lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda. Ívilnanir hafa nú verið nýttar fyrir um 12.300 bíla og útlit fyrir að fjöldatakmörkun náist að óbreyttu síðar á árinu. Undanfarin tíu ár hafa…Lesa meira

true

Aðgerðarhópur gegn vindorkuverum spyr frambjóðendur

Aðgerðahópur gegn vindorkuverum í Norðurárdal í Borgarfirði hefur sent erindi á alla frambjóðendur til sveitarstjórnar í Borgarbyggð. Hópurinn vill að skýr afstaða frambjóðenda liggi fyrir í málinu áður en gengið verður til kosninga til sveitastjórnar í vor. Erindið undirrita 90 íbúar og landeigendur í héraðinu. Í erindi segir m.a.: „Á þessu kjörtímabili sveitarstjórnar í Borgarbyggð…Lesa meira

true

Lögbýlaskrá ársins 2020 er komin út

Þjóðskrá hefur birt nýja lögbýlaskrá fyrir landið, en hún miðast við árslok 2020. Í fasteignaskrá er að finna ítarlegar upplýsingar um fasteignir og eru þar á meðal allar þær upplýsingar sem birta skal í lögbýlaskrá. Skránni er skipt eftir sveitarfélaganúmerum. Í fremsta dálki er að finna upplýsingar um heiti eignarinnar og þar fyrir aftan landnúmer…Lesa meira

true

Asahláka og flóð í borgfirsku ánum

Í gær rigndi mikið um vestanvert landið samhliða hlýjum vindum. Snjóbráð var samkvæmt því mikil. Árnar í Borgarfirði höfðu engan vegin við vatnsflaumnum og margar sem brutust fram með klakahlaupi og látum. Meðal annars var óvenjulega mikið flóð í Andakílsá og þá hafði hefðbundinn farvegur Hvítár ekki undan að færa til sjávar allt vatnið af…Lesa meira

true

Sameining Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar samþykkt í afgerandi kosningu

Í dag gengu íbúar í Stykkishólmsbæ og Helgafellssveit á Snæfellsnesi til kosninga og samþykktu sameiningu sveitarfélaganna. Niðurstaðan varð afgerandi í báðum sveitarfélögum. Í Helgafellssveit voru 56 á kjörskrá og kusu 52. Já sögðu 41, nei sögðu níu og auðir seðlar og ógildir voru tveir. Kjörsókn var því 93%. Í Stykkishólmsbæ voru 837 á kjörskrá og…Lesa meira

true

ÍA með fimmtán ósigra í röð eftir tap gegn Fjölni

Fjölnir og ÍA léku í gær lokaleik sinn þennan veturinn í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Dalhúsum í Grafarvogi. Heimamenn voru ívið sterkari í fyrsta leikhluta og voru með sjö stiga forystu þegar flautan gall, 31:24. Fjölnir hélt áfram að auka við forskotið í öðrum leikhluta og var munurinn kominn…Lesa meira