Lögbýlin Birkihlíð og Skáney í Reykholtsdal. Ljósm. mm.

Lögbýlaskrá ársins 2020 er komin út

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þjóðskrá hefur birt nýja lögbýlaskrá fyrir landið, en hún miðast við árslok 2020. Í fasteignaskrá er að finna ítarlegar upplýsingar um fasteignir og eru þar á meðal allar þær upplýsingar sem birta skal í lögbýlaskrá. Skránni er skipt eftir sveitarfélaganúmerum. Í fremsta dálki er að finna upplýsingar um heiti eignarinnar og þar fyrir aftan landnúmer hennar. Þar næst birtast upplýsingar um hvort eignin sé merkt í eyði og er sú merking sótt í fasteignaskrána. Aftasti dálkurinn inniheldur upplýsingar um landeigendur og ábúendur og eru landeigendur merktir með bókstafnum E og ábúendur með bókstafnum Á. Á árinu 2020 voru gerðar alls 15 breytingar á lögbýlaskrá þar sem 15 ný lögbýli voru skráð en ekkert lögbýli var afskráð.\r\n\r\n<a class=\"link-to-pdf\" title=\"Lögbýlaskrá 2020\" href=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/03/Logbylaskra-2020.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"attachment noopener wp-att-52223\"><img class=\"alignnone size-medium wp-image-52224\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/03/Logbylaskra-2020-pdf-600x849.jpg\" alt=\"thumbnail of Lögbýlaskrá 2020\" width=\"212\" height=\"300\" /></a>",
  "innerBlocks": []
}
Lögbýlaskrá ársins 2020 er komin út - Skessuhorn