Íbúalistinn í Hvalfjarðarsveit mun ekki bjóða fram í vor

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Íbúalistinn í Hvalfjarðarsveit var að senda frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að listinn muni ekki bjóða fram fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þar með hafa allir núverandi listar sem átt hafa fulltrúa í sveitarstjórn sagt sig frá framboði, en áður höfðu Á listi Áfram Hvalfjarðarsveit og H listi gert slíkt hið sama. Íbúalistinn hefur setið í minnihluta í sveitarstjórn á yfirstandandi kjörtímabili, átt tvo fulltrúa í sveitarstjórn af sjö.\r\n\r\nRagna Ívarsdóttir og Elín Ósk Gunnarsdóttir, fulltrúar Íbúalistans í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar, segja í tilkynningu að Íbúalistinn muni ekki bjóða fram við komandi sveitarstjórnarkosningar þann 14. maí næstkomandi:\r\n\r\n„Það að sitja í sveitarstjórn er fjölbreytt starf, krefjandi og spennandi enda hlutverkið margþætt og byggist á samvinnu. Í allri einlægni hefur það kjörtímabil sem nú er að ljúka verið lærdómsríkt fyrir undirritaðar en í leiðinni hefur það bæði verið krefjandi og erfitt. Undirritaðar hafa þurft að takast á við flókna stöðu þar sem fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar hafa unnið að því leynt og ljóst að halda okkur sem lengst frá öllu sem við kemur störfum sveitarstjórnar. Starfsskilyrði okkar hafa á engan hátt verið góð síðustu fjögur ár og meirihlutanum ekki til framdráttar. Neikvætt umtal og áreiti sem því fylgir að gefa kost á sér til starf í sveitarstjórn er ekki aðlaðandi starfsumhverfi, þessu þarf að breyta,“ segja þær Ragna og Elín Ósk.",
  "innerBlocks": []
}
Íbúalistinn í Hvalfjarðarsveit mun ekki bjóða fram í vor - Skessuhorn