
Tónlistarfólk í Grundarfirði. Myndin er ekki tengd fréttinni með beinum hætti. Ljósm. tfk.
Tímabundin aukning starfslauna til yngri listamanna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar og viðskiptaráðherra, mælti í síðustu viku fyrir frumvarpi um tímabundna fjölgun starfslauna til handa sviðslistafólki og tónlistarflytjendum. Nánar tiltekið er um að ræða, breytingu á lögum um listamannalaun, nr. 53/2009. Með frumvarpinu er lagt til að starfslaunum listamanna í gegnum launasjóð sviðslistafólks verði fjölgað um 50 og þau viðbótarmánaðarlaun sérstaklega skilyrt ungu sviðslistafólki undir 35 ára aldri. Svipað er uppi á teningnum fyrir launasjóð tónlistarflytjenda sem fær 150 viðbótarmánaðarlaun til úthlutunar. Þar af verða 50 sérstaklega skilyrt ungu tónlistarfólki undir 35 ára. Þá mun Sviðslistasjóður fá aukið fjármagn sem nemur 50 m.kr., en Sviðslistasjóður er verkefnasjóður sem styður við uppsetningu og starfsemi sviðslistaverka.\r\n\r\nHeimsfaraldur kórónuveiru hefur haft mikil og neikvæð áhrif á hagkerfið og einstaka atvinnugreinar, en samkvæmt tölum Hagstofunnar dróst landsframleiðsla saman um 6,5% á árinu 2020. Samdráttur í verðmætasköpun í menningargeiranum, sérstaklega þeim greinum hans sem byggja tekjuöflun sína að mestu á viðburðahaldi, var gríðarlegur. Þannig voru greiðslur til rétthafa í tónlist vegna tónleikahalds á árinu 2021 t.a.m. 87% lægri en samsvarandi tekjur árið 2019.",
"innerBlocks": []
}