Úr leik Víkings Ólafsvíkur og ÍR á laugardaginn. Ljósm. af

Lengjubikarnum að ljúka hjá liðunum af Vesturlandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Víkingur Ólafsvík tók á móti ÍR á laugardaginn í riðli 1 í B deild karla í Lengjubikarnum í knattspyrnu og fór leikurinn fram á Ólafsvíkurvelli. Arnór Siggeirsson kom heimamönnum yfir á 22. mínútu og mínútu fyrir hálfleik bætti Kristófer Daði Kristjánsson við öðru marki fyrir Víking. Pétur Hrafn Friðriksson minnkaði muninn fyrir ÍR tíu mínútum fyrir leikslok en lengra komust þeir ekki og urðu síðan að sjá á eftir Jóni Gísla Ström sem fékk rautt spjald á 90. mínútu, lokatölur 2-1 fyrir Víking.\r\n\r\nÍ gær léku KFS og Kári í sama riðli á Domusnovavellinum í Breiðholti og endaði leikurinn með jafntefli, 3-3. Frans Sigurðsson kom KFS á bragðið á 19. mínútu en fimm mínútum síðar misstu þeir Aron Smára Magnússon út af með rautt spjald. Það virtist þó ekki koma að sök því eftir hálftíma leik kom Daníel Már Sigmarsson KFS í tveggja marka forystu en Káramenn voru snöggir til því Fylkir Jóhannsson minnkaði muninn mínútu síðar. Fimm mínútum fyrir hálfleik fékk Haukur Helgason, leikmaður KFS, sitt annað gula spjald og leikmenn KFS tveimur færri fyrir hálfleik. Kári jafnaði þó ekki metin fyrr en á 82. mínútu með marki frá fyrirliðanum Andra Júlíussyni og fimm mínútum síðar kom hann þeim yfir með öðru marki sínu í leiknum. Það dugði þó ekki til sigurs því mínútu fyrir leikslok jafnaði Leó Viðarsson fyrir KFS og jafntefli því niðurstaðan. Víkingur Ó og Kári enduðu jöfn í öðru og þriðja sæti riðilsins með sjö stig en ÍR í því efsta með tólf stig og fer í úrslitakeppni sex liða.\r\n\r\nÍ gær mættust einnig lið GG og Reynis Hellissands í riðli 3 í C deild karla og fór leikurinn fram á Domusnovavellinum í Breiðholti. GG komst yfir í leiknum með marki Ivan Jugovic á 31. mínútu og á 79. mínútu var Reynismaðurinn Kristján Freyr Tómasson rekinn af velli. Mínútu síðar skoraði Birkir Snær Sigurðsson annað mark GG en einum færri náðu Reynismenn að minnka muninn í uppbótartíma með marki frá Birni Óla Snorrasyni, lokatölur 2-1 fyrir GG. Reynir er enn án sigurs í riðlinum en á einn leik eftir gegn Hvíta riddaranum og verður hann á Ólafsvíkurvelli laugardaginn 2. apríl og hefst klukkan 14.\r\n\r\nSkallagrímur lék síðasta leik sinn í riðli 5 í C deild karla síðasta miðvikudag gegn KÁ og var leikurinn á Ásvöllum í Hafnarfirði. Skallagrímur var þremur mörkum undir eftir fyrri hálfleikinn og heimamenn komust í 7-0 áður en Hlöðver Már Pétursson skoraði sárabótarmark fyrir Skallagrím mínútu fyrir leikslok. Skallagrímur lauk leik í Lengjubikarnum þetta árið í þriðja sæti riðilsins með þrjú stig.",
  "innerBlocks": []
}
Lengjubikarnum að ljúka hjá liðunum af Vesturlandi - Skessuhorn