ÍA endaði í neðsta sæti í deildinni með tvö stig í 27 leikjum og leikur í 2. deild á næsta tímabili. Ljósm. vaks

ÍA með fimmtán ósigra í röð eftir tap gegn Fjölni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fjölnir og ÍA léku í gær lokaleik sinn þennan veturinn í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Dalhúsum í Grafarvogi. Heimamenn voru ívið sterkari í fyrsta leikhluta og voru með sjö stiga forystu þegar flautan gall, 31:24. Fjölnir hélt áfram að auka við forskotið í öðrum leikhluta og var munurinn kominn í 20 stig þegar flautað var til hálfleiks, 60:40 fyrir Fjölni.\r\n\r\nÍ þriðja leikhluta var þetta á sömu nótum, Fjölnir hélt áfram að raða niður körfum og allt útlit fyrir að gestirnir yrðu rassskelltir þetta kvöldið, 31 stigs munur fyrir fjórða og síðasta leikhluta, 89:58. En þá hrökk ÍA loksins í gang þó seint væri og náði að minnka muninn í 17 stig fyrir leikslok, lokatölur 107:90.\r\n\r\nStigahæstir hjá ÍA í leiknum voru þeir Cristopher Clover með 36 stig og 10 fráköst og Lucien Christofis og Hendry Engelbrecht voru með 14 stig hvor. Hjá Fjölni var Dwayne Foreman Jr. með 34 stig og 10 fráköst, Fannar Elí Hafþórsson með 19 stig og Daníel Ágúst Halldórsson með 16 stig.",
  "innerBlocks": []
}
ÍA með fimmtán ósigra í röð eftir tap gegn Fjölni - Skessuhorn