
Vor í Norðurárdal. Bærinn Klettstía fyrir miðri mynd. Ljósm. mm.
Aðgerðarhópur gegn vindorkuverum spyr frambjóðendur
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Aðgerðahópur gegn vindorkuverum í Norðurárdal í Borgarfirði hefur sent erindi á alla frambjóðendur til sveitarstjórnar í Borgarbyggð. Hópurinn vill að skýr afstaða frambjóðenda liggi fyrir í málinu áður en gengið verður til kosninga til sveitastjórnar í vor. Erindið undirrita 90 íbúar og landeigendur í héraðinu. Í erindi segir m.a.:\r\n\r\n„Á þessu kjörtímabili sveitarstjórnar í Borgarbyggð hafa íbúar í Norðurárdal og Þverárhlið staðið í ströngu. Landeigendur, fjölskyldur þeirra og annað fólk sem á þar athvarf eða er annt um þessar náttúruperlur Borgarfjarðar hafa mátt standa í baráttu við erlenda menn og húskarla þeirra sem vilja reisa risavaxin vindorkuver í Norðurárdal og Þverárhlíð.\r\n\r\nVið teljum að þessi áform séu óbætanleg náttúruspjöll, verði af framkvæmdum, og atlaga að tilveru okkar. Við höfum barist á móti þessum átroðningi af fremsta megni og um þá mótstöðu er yfirgnæfandi og eindregin samstaða. Sveitarstjórnin getur leyst þetta vandamál. Hún hefur það vald sem til þess þarf og við völdum þangað fólk sem við treystum til þess að verja hagsmuni okkar.\r\n\r\nNú eru sveitarstjórnarkosningar framundan. Þá koma þeir fram sem vilja þjóna okkur á næsta kjörtímabili og gera grein fyrir hugmyndum sínum um betra samfélag og segja okkur hvernig þeir ætla að vinna að því. Nú leitum við til ykkar sem eruð í framboði og förum fram á það að þið svarið þessu erindi og gerið ljósa grein fyrir því hver afstaða ykkar er í þessu máli. Við þurfum á aðstoð ykkar að halda og við þurfum þess vegna að þekkja skoðanir ykkar. Sú þekking er okkur nauðsynleg í þeirri baráttu sem framundan er,“ segir í fyrirspurn sem 90 kjósendur, landeigendur og náttúruverndarsinnar í Borgarbyggð hafa sent frambjóðendum.",
"innerBlocks": []
}