Einstakur apríl er nýtt slagorð fyrir félag barna með einhverfu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samtökin sem áður eru þekkt sem Blár apríl – Styrktarfélag barna með einhverfu, hafa staðið fyrir sýnileikaherferð fyrir einhverfu síðasliðin níu ár. Í ár kveður við nýjan tón og ásýnd hjá félaginu, það leggur bláa litinn á hilluna og tekur upp nafnið Einstakur apríl. Merki félagsins fékk einnig yfirhalningu, merkið er nú í öllum regnbogans litum og undirstrikar áherslu þeirra á fjölbreytileika einhverfunnar.\r\n\r\n„Þekking á einhverfu hefur aukist mikið síðustu ár, til að mynda með aukinni viðurkenning á einkennum kvenna á einhverfurófi. Nýja nafnið og litróf merkisins endurspeglar nú betur það sem við stöndum fyrir, fjölbreytileikann og það að einhverfa er ekki vandamál sem þarf að leysa heldur náttúrulegur hluti af fjölbreytileika mannlífsins,“ segir Arthúr Ólafsson, formaður samtakanna Einstakur apríl. Arhúr segir að árleg herferð samtakanna nú í apríl verði því tileinkuð sýnileika á fjölbreyttu litrófi einhverfunnar og rödd einhverfra sjálfra. „Félagið okkar er rekið af foreldrum en einhverfir sjálfir eru sífellt sýnilegri í umræðunni og viljum við ýta undir það eins og við getum,“ segir hann.\r\n\r\nLengi vel vantaði uppá vitneskju fræðasamfélagsins um einhverfu, greiningin var með einhliða fókus á því sem er sýnilegt hið ytra. Síðastu ár hafa hins vegar einhverfir sjálfir stigið inn á sviðið og tekið orðið í eigin málaflokki. „Það hefur kennt okkur svo mikið, að hlusta á einhverfa, skynjun þeirra sjálfra og upplifun á því að vera á einhverfurófinu. Sú vitneskja skýrir myndina enn frekar og hjálpar okkur taugatýpísku foreldrunum að mæta börnunum okkar þar sem þau eru og að læra að setja okkur betur í þeirra spor,“ segir Arthúr.\r\n\r\nHann hvetur alla til að nota apríl til að kynna sér einhverfu. Á heimasíðu félagsins, <a href=\"https://einstakurapril.is/\">https://einstakurapril.is/</a> er til að mynda að finna stuttar teiknimyndir sem tilvalið er fyrir foreldra að skoða með börnunum sínum og þannig skapa umræðu um margbreytileikann. „Svo erum við á samfélagsmiðlum, undir nafninu Einstakur apríl, að miðla fróðleiksmolum, benda á viðburði o.fl, endilega fylgið okkur og hjálpið okkur við að auka sýnileikann,“ segir Arthúr.\r\n\r\n<strong>Um nýtt merki samtakanna</strong>\r\n\r\nMerking og myndmál fiðrildisins á áfram vel við samtökin. Fiðrildið er táknmynd frelsis, frelsi til að vera nákvæmlega eins og við erum. Í upphafi eru öll fiðrildi lirfur en eftir meðgöngutímann í púpunni lítur það dagsins ljós í allri sinni dýrð, ein-stakt í sinni birtingu. Þó manneskjur séu eins í grunninn og séu til að mynda svipaðar að stærð við 20 vikna meðgöngu þá eru þær líka að þróast á sinn einstaka hátt. Taugabreytileiki manneskjunnar og mismunandi skynjun hennar á heiminum og sér sjálfum kemur ekki í ljós fyrr en hún fer að reyna sig í raunheimi. Fiðrildið er líka myndað úr tveimur andlitum sem er bæði táknrænt fyrir foreldri og barn, sem og fjölbreytileikann á einhverfurófinu. Engin tvö eru alveg eins. Andlitin bera ólíka liti og hafa ólíka britingu en eru á sama tíma eins í grunninn.\r\n\r\nUm hönnun merkis sá Guðrún le Sage de Fontenay en hún hannaði einnig upprunalega merki samtakanna og endurhannaði það nú fyrir nýja tíma.",
"innerBlocks": []
}
Einstakur apríl er nýtt slagorð fyrir félag barna með einhverfu - Skessuhorn