Fréttir

true

Nótan 2022 fer fram í Stykkishólmskirkju í dag

Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskóla, fer fram um helgina á fimm svæðistónleikum um landið. Tilgangur uppskeruhátíðarinnar er að beina kastljósinu að samfélagi tónlistarskóla og tónlistarnemenda. Tónleikar fyrir Snæfellsnes og Vestfirði verða haldnir í Stykkishólmskirkju í dag, laugardaginn 19. mars klukkan 14. Allir eru velkomnir á tónleikana og aðgangur er ókeypis. Á tónleikunum koma fram nemendur frá Tónlistarskóla…Lesa meira

true

Leggja til hækkun framlags launagreiðenda í lífeyrissjóði

Í samráðsgátt stjórnvalda hafa nú verið birt drög að frumvarpi til laga um lífeyrismál. Efni þess er liður í stuðningi ríkisstjórnarinnar við gerð lífskjarasamnings aðila vinnumarkaðarins frá árinu 2019. Frumvarp að mestu leyti um sama efni var lagt fram á Alþingi í apríl 2021 en náði ekki fram að ganga. Í nefndaráliti efnahags- og viðskiptanefndar…Lesa meira

true

Tímamót Glímusambandsins í Dalabúð

Tímamót Glímusambands Íslands fer fram í Dalabúð, Búðardal á morgun, laugardaginn 19. mars klukkan 12. Tímamótið er frábrugðið öðrum glímumótum að því leyti að keppendur fá stig eftir því hve fljótir þeir eru að leggja andstæðinginn. Mótið er fyrir 15 ára og eldri en er dýnumót, þar sem venjulega keppa fullorðnir á parketgólfi. Því má…Lesa meira

true

Vetrardagar á Akranesi um helgina

Ýmsir viðburðir verða á Vetrardögum á Akranesi um helgina og er mest um að vera á morgun, laugardag. Í fyrramálið hefst þetta allt saman með Kellingar ganga heim að Görðum þar sem gengið verður um Garðasvæðið og kirkjugarðinn og hefst gangan við Írska steininn klukkan 11. Klukkan 13 á Ægisbraut 30 opnar Tinna Royal sýninguna…Lesa meira

true

Frönsk listakona dvelur í húsnæði ArtAk

Franska listakonan Catherine Redolfi er stödd í Grundarfirði þessa dagana þar sem hún vinnur að list sinni undir áhrifum frá umhverfinu. Catherine kom til landsins í byrjun árs og verður út marsmánuð í listamannaíbúð ArtAk350 í Grundarfirði. Hún stefnir samt á að dvelja á Íslandi í tvö ár. Þann 25. og 26. mars næstkomandi mun…Lesa meira

true

Mynd að koma á nýja Garðasel

Iðnaðarmenn voru á fullri ferð í nýbyggingu nýja leikskólans Garðasels á Asparskógum í Skógarhverfi á Akranesi þegar blaðamaður Skessuhorns átti leið hjá síðasta þriðjudag. Nýja húsnæðið verður tæplega sextán hundruð fermetrar og er áætlað að hluti af rými húsnæðisins verði tilbúið í lok sumars.Lesa meira

true

Vel heppnað Ungmennaþing á Lýsuhóli

Ungmennaþing Vesturlands fór fram á Lýsuhóli dagana 12.-13. mars síðastliðinn. Sex sveitarfélög á Vesturlandi sendu fulltrúa á þingið, þar á meðal Borgarbyggð. Meðlimir Ungmennaráðs Borgarbyggðar fengu tækifæri til að stuðla að uppbyggingu í þágu ungs fólks í landshlutanum og kynnast öðrum ungmennum á svæðinu svo fátt eitt sé nefnt. Þetta kemur fram á vefsíðu Borgarbyggðar.…Lesa meira

true

Lífskjör flestra þjóðfélagshópa hafa batnað í heimsfaraldri

Heimilin í landinu telja gæði eigin lífskjara í, eða nálægt, sögulegu hámarki. Þetta sýna niðurstöður lífskjararannsóknar Hagstofunnar fyrir árin 2019-2021. Hlutfall heimila sem eiga erfitt með að láta enda ná saman hefur aldrei verið lægra og aldrei hafa færri talið byrði húsnæðiskostnaðar þungan. Hlutfall heimila sem segjast búa við efnislegan skort er nálægt sögulegu lágmarki…Lesa meira

true

Snæfell úr leik í VÍS bikarnum eftir tap gegn Breiðabliki

Snæfell og Breiðablik mættust í gær í undanúrslitum VÍS bikars kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Smáranum í Kópavogi. Jafnt var á með liðunum fyrstu mínúturnar og staðan 8:10 fyrir Breiðablik eftir fimm mínútna leik. Úrvalsdeildarliðið úr Kópavogi var líklegra til afreka og leiddi með sjö stigum eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta…Lesa meira

true

Þæfingur og lokað á sumum fjallvegum

Vegir eru almennt færir á láglendi á Vesturlandi, en hálkublettur hér og hvar. Vegurinn um Vatnaleið er einbreiður meðan unnið er að snjómokstri. Brattabrekka er sögð ófær. Þá er Holtvörðuheiði lokuð vegna umferðaróhapps sem varð við Miklagil, á norðanverðri heiðinni, í morgun. Þrír fólksbílar og flutningabíll eru samkvæmt upplýsingum Skessuhorns í óhappinu, en ekki alvarleg…Lesa meira