Leggja til hækkun framlags launagreiðenda í lífeyrissjóði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í samráðsgátt stjórnvalda hafa nú verið birt drög að frumvarpi til laga um lífeyrismál. Efni þess er liður í stuðningi ríkisstjórnarinnar við gerð lífskjarasamnings aðila vinnumarkaðarins frá árinu 2019. Frumvarp að mestu leyti um sama efni var lagt fram á Alþingi í apríl 2021 en náði ekki fram að ganga. Í nefndaráliti efnahags- og viðskiptanefndar þingsins var lagt til að málinu yrði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar til frekari vinnslu m.t.t. ábendinga í umsögnum. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur nú lokið endurskoðun á málinu og leggur uppfærð drög fram til samráðs að nýju.\r\n\r\nÍ frumvarpinu felast fimm meginbreytingar. Í fyrsta lagi er lögbundin hækkun mótframlags launagreiðenda á almennum vinnumarkaði til lífeyrissjóðs úr 8% í 11,5%. Í öðru lagi er lagt til að sjóðfélagar geti ráðstafað hækkun mótframlagsins til þess er mun kallast tilgreind séreign, í stað þess að ráðstafa hækkuninni í samtryggingardeildir lífeyrissjóða. Í þriðja lagi eru tillögur að auknum heimildum til þess að nýta úrræði lífeyrissparnaðar til fyrstu kaupa á fasteign. Í fjórða lagi er lagt til að tilgreindur verði á skýran hátt sá hluti lífeyrissparnaðar sem kemur ekki til lækkunar við ákvörðun um ellilífeyri, tekjutryggingu og ráðstöfunarfé samkvæmt lögum um almannatrygginga. Í fimmta lagi er lagt til að verðlagsuppfærslur lífeyrisgreiðslna eigi sér stað einu sinni á ári í stað mánaðarlega eins og nú er.\r\n\r\nÍ samráðsgáttinni er einnig birt glærukynning um meginefni frumvarpsins auk ítarefnis.",
"innerBlocks": []
}
Leggja til hækkun framlags launagreiðenda í lífeyrissjóði - Skessuhorn