Þátttakendur ásamt frambjóðendum af Vesturlandi. Ljósm. af vef Borgarbyggðar.

Vel heppnað Ungmennaþing á Lýsuhóli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ungmennaþing Vesturlands fór fram á Lýsuhóli dagana 12.-13. mars síðastliðinn. Sex sveitarfélög á Vesturlandi sendu fulltrúa á þingið, þar á meðal Borgarbyggð. Meðlimir Ungmennaráðs Borgarbyggðar fengu tækifæri til að stuðla að uppbyggingu í þágu ungs fólks í landshlutanum og kynnast öðrum ungmennum á svæðinu svo fátt eitt sé nefnt. Þetta kemur fram á vefsíðu Borgarbyggðar.\r\n\r\nUmræðuefni þingsins var mjög fjölbreytt. Staða ungmenna á Vesturlandi frá ýmsum hliðum var meðal þess sem rætt var, auk þess sem hópurinn fékk fræðslu. Á lokadegi þingsins mættu síðan frambjóðendur frá Akraneskaupstað, Stykkishólmsbæ og Borgarbyggð. Ungmennin voru búin að vinna góða undirbúningsvinnu áður en frambjóðendur mættu á svæðið, sem gerði það að verkum að áhugaverðar samræður áttu sér stað.\r\n\r\nUngmennaþingið var vel heppnað í alla staði og fá allir þátttakendur þingsins skýrslu sem Ungmennaráð Borgarbyggðar mun hafa til hliðsjónar í áframhaldandi vinnu sinni. Næsta þing fer síðan fram eftir tvö ár og er strax mikil tilhlökkun fyrir því að endurtaka þessa frábæra helgi.",
  "innerBlocks": []
}
Vel heppnað Ungmennaþing á Lýsuhóli - Skessuhorn