Nótan 2022 fer fram í Stykkishólmskirkju í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskóla, fer fram um helgina á fimm svæðistónleikum um landið. Tilgangur uppskeruhátíðarinnar er að beina kastljósinu að samfélagi tónlistarskóla og tónlistarnemenda. Tónleikar fyrir Snæfellsnes og Vestfirði verða haldnir í Stykkishólmskirkju í dag, laugardaginn 19. mars klukkan 14. Allir eru velkomnir á tónleikana og aðgangur er ókeypis. Á tónleikunum koma fram nemendur frá Tónlistarskóla Stykkishólms og frá öðrum tónlistarskólum á Snæfellsnesi og Vestfjörðum. Frá þessu segir á vef Stykkishólmsbæjar.\r\n\r\nNótan var fyrst haldin skólaárið 2009 til 2010 og er árlegur viðburður í kerfi tónlistarskóla á Íslandi. Hátíðin er í senn faglega hvetjandi og skemmtilegt innlegg í skólastarfið fyrir alla aðstandendur skólanna, jafnt innan veggja þeirra sem utan. Síðustu tvö ár hefur ekki verið unnt að halda uppskeruhátíðina sökum faraldursins en nú verður tónleikahald um allt land af fullum krafti.",
  "innerBlocks": []
}
Nótan 2022 fer fram í Stykkishólmskirkju í dag - Skessuhorn