
Catherine Redolfi á vinnustofu sinni hjá ArtAk350 í Grundarfirði. Ljósm. tfk.
Frönsk listakona dvelur í húsnæði ArtAk
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Franska listakonan Catherine Redolfi er stödd í Grundarfirði þessa dagana þar sem hún vinnur að list sinni undir áhrifum frá umhverfinu. Catherine kom til landsins í byrjun árs og verður út marsmánuð í listamannaíbúð ArtAk350 í Grundarfirði. Hún stefnir samt á að dvelja á Íslandi í tvö ár. Þann 25. og 26. mars næstkomandi mun hún halda sýningu á verkum sínum í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði og hvetur alla til að mæta.\r\n\r\n„Ég pakkaði því sem ég gat í bílinn og lagði af stað,“ segir Catherine í stuttu spjalli við fréttaritara Skessuhorns, en fyrir utan íbúðina stendur lítill Suzuki jeppi á frönskum númerum. „Ég er hannyrðakona og öll mín verk eru gerð með þeim hætti. Ég reyni að endurskapa landslag sem ég sé á myndum og endurgeri þær úr því efni sem ég hef aðgang að. Ég nota mikið perlur og tvinna í verkum mínum.“ Catherine sýnir gesti myndir sem eru eftir loftmynd af Skeiðarárjökli annars vegar og svo brotnum ísjökum við Kirkjufellsfoss hins vegar.\r\n\r\nCatherina starfaði sem vísindamaður á rannsóknarstofu þegar hún var yngri. „Þegar ég var 45 ára gömul fór ég á listsýningu þar sem ég heillaðist algjörlega. Ég skráði mig í listnám og fékk leyfi og námsstyrk hjá vinnuveitendum mínum. Síðan þá hef ég nær eingöngu einbeitt mér að listinni. Ég er einnig heilluð af eldfjöllum og eldgosum og geri margar svoleiðis myndir.“ Catherine ekur um og lætur landslagið veita sér innblástur og er mikið af ís og snjó í verkunum sem hún er að vinna að núna. „Ég stefni svo á að vera á Íslandi í tvö ár og er að leita mér að íbúð eða herbergi á Snæfellsnesi frá 1. apríl.“\r\n\r\nCatherine er afar þakklát öllu fólkinu á Snæfellsnesi en hún hefur mætt velvild og hjálpsemi hvar sem hún hefur komið. Lúðvík Karlsson, eða Liston, fær sérstakt hrós frá henni. „Liston átti að koma og vera með mér á myndinni en var því miður vant við látinn. Ég kom fyrst til Íslands árið 1980 sem ferðamaður og varð heilluð af landinu og landslaginu. Ég vil vera hérna næstu tvö árin að minnsta kosti og vinna að listinni,“ segir hún að lokum.",
"innerBlocks": []
}