Frá heimsókn írsku tónlistarkonunnar Elaine Ní Cuana á írskum vetrardögum árið 2017 á leikskólanum Vallarseli þar sem hún kynnti fyrir börnum og starfsfólki írsk hljóðfæri.

Vetrardagar á Akranesi um helgina

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ýmsir viðburðir verða á Vetrardögum á Akranesi um helgina og er mest um að vera á morgun, laugardag. Í fyrramálið hefst þetta allt saman með Kellingar ganga heim að Görðum þar sem gengið verður um Garðasvæðið og kirkjugarðinn og hefst gangan við Írska steininn klukkan 11. Klukkan 13 á Ægisbraut 30 opnar Tinna Royal sýninguna Gulur-Bleikur sem er umhverfislistasýning þar sem Bónus plastpokinn er í aðalhlutverki. Sýningin er safn Bónusplastpoka sem nú eru ólöglegir, ljósmyndir af Bónuspokum sem fundust í umhverfinu, gul og bleik málverk og fleiri Bónus innblásin verk.\r\n\r\nFarandsirkussýning með Sirkus Ísland verður sama dag í Íþróttahúsinu milli 16 og 17 þar sem boðið er upp á grín, glens og frábær sirkusbrögð fyrir alla fjölskylduna. Klukkan 17 verða sameiginlegir tónleikar þegar Karlakórinn Svanir fær Karlakórinn Þresti í heimsókn í Tónberg. Um kvöldið halda Ægisbraut Records tónleika í Gamla Landsbankahúsinu sem hefjast klukkan 20. Þar koma fram Volcanova, Börn, Merkúr og Green Spleen Submarine sem flytja klassa eyðimerkurrokk, drungapönk, þrassmetal og sýrupönk. Frítt er inn á þennan viðburð og fyrir alla aldurshópa.",
  "innerBlocks": []
}
Vetrardagar á Akranesi um helgina - Skessuhorn