Fréttir

true

Vesturlandsliðin léku í Lengjubikarnum um helgina

Kári tók á móti KH í B deild karla í riðli 1 í Lengjubikarnum í knattspyrnu á laugardaginn. Magnús Óliver Axelsson kom KH yfir á 70. mínútu en Sveinn Þorkell Jónsson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark fimm mínútum fyrir leikslok og jafna leikinn fyrir Kára. Það var síðan annað sjálfsmark KH sem tryggði…Lesa meira

true

Horfðu á verkstæðið sitt fuðra upp

Þriðjudaginn 8. mars síðastliðinn varð laus eldur í Bifreiðaþjónustu Snæfellsness að Sólvöllum 5 í Grundarfirði. Þar eru einnig fyrirtækin Rútuferðir og Álfar og Tröll til húsa en rekstraraðilar allra þessara fyrirtækja eru hjónin Hjalti Allan Sverrisson og Lísa Ásgeirsdóttir. Ljóst er að tjónið er umtalsvert enda húsið gjörónýtt og allt sem í því var. Það…Lesa meira

true

Tímabundin inniaðstaða púttara

Ný inniaðstaða fyrir golf- og púttiðkun hefur verið að taka á sig mynd í kjallara Hjálmakletts í Borgarnesi síðastliðnar vikur. Nú er aðstaðan tilbúin til notkunar. „Nú geta hafist æfingar barna og unglinga í golfi. Púttmótin fara aftur af stað fyrir klúbbmeðlimi ásamt því að púttiðkun eldri borgara fer aftur á fullt skrið,“ segir framkvæmdastjóri…Lesa meira

true

Hvað eru skinnhandrit og af hverju þarf að læsa þau niður?

Dagana 21. til 24. mars fær miðstig nokkurra grunnskóla á Vesturlandi óvenjulega heimsókn. Þar er á ferðinni kynning á sjálfum handritunum undir heitinu; Bál tímans – kveikjum ljós um miðaldahandritin! Bók Arndísar Þórarinsdóttur er þungamiðja kynningarinnar sem höfundurinn annast ásamt Evu Maríu Jónsdóttur miðaldafræðingi. Það er List fyrir alla sem sendir þessa fulltrúa Árnastofnunar sem…Lesa meira

true

Vinstri græn kynna framboðslista í Borgarbyggð

Framboðslisti Vinstri grænna í Borgarbyggð var samþykktur á félagsfundi í dag, sunnudaginn 20. mars. Thelma Dögg Harðardóttir er oddviti listans. Thelma er 26 ára verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Hún kemur ný inn í pólitíkina en hefur tekið forystu í náttúruverndarbaráttu í sinni heimasveit, en Thelma er frá Skarðshömrum í Norðurárdal. Brynja Þorsteinsdóttir skipar…Lesa meira

true

Blíðu veður á jafndægri að vori

Jafndægur er sú stund ársins kölluð þegar sól er beint yfir miðbaugi jarðar. Þetta gerist tvisvar á ári, á vorjafndægri og haustjafndægri. Í dag er jafndægur að vori en þá er dagurinn um það bil jafn langur nóttinni hvar sem er á jörðinni – og af því er nafnið dregið. Meðfylgjandi mynd tók Gunnlaugur A…Lesa meira

true

Gott á handfærum en slagt á línu

Gísli Marteinsson sjómaður í Ólafvík var glaður í bragði í gær þegar hann kom að landi á báti sínum Glaði SH. Eftir langan óveðursafla komust smærri bátar loks á sjó og var afli góður hjá þeim bátum sem róa á handfærum. Gísli var með þrjú tonn af flottum þorski. Handfærabáturinn Hilmir SH var með 1,5…Lesa meira

true

Nótan 2022 fer fram í Stykkishólmskirkju í dag

Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskóla, fer fram um helgina á fimm svæðistónleikum um landið. Tilgangur uppskeruhátíðarinnar er að beina kastljósinu að samfélagi tónlistarskóla og tónlistarnemenda. Tónleikar fyrir Snæfellsnes og Vestfirði verða haldnir í Stykkishólmskirkju í dag, laugardaginn 19. mars klukkan 14. Allir eru velkomnir á tónleikana og aðgangur er ókeypis. Á tónleikunum koma fram nemendur frá Tónlistarskóla…Lesa meira

true

Leggja til hækkun framlags launagreiðenda í lífeyrissjóði

Í samráðsgátt stjórnvalda hafa nú verið birt drög að frumvarpi til laga um lífeyrismál. Efni þess er liður í stuðningi ríkisstjórnarinnar við gerð lífskjarasamnings aðila vinnumarkaðarins frá árinu 2019. Frumvarp að mestu leyti um sama efni var lagt fram á Alþingi í apríl 2021 en náði ekki fram að ganga. Í nefndaráliti efnahags- og viðskiptanefndar…Lesa meira

true

Tímamót Glímusambandsins í Dalabúð

Tímamót Glímusambands Íslands fer fram í Dalabúð, Búðardal á morgun, laugardaginn 19. mars klukkan 12. Tímamótið er frábrugðið öðrum glímumótum að því leyti að keppendur fá stig eftir því hve fljótir þeir eru að leggja andstæðinginn. Mótið er fyrir 15 ára og eldri en er dýnumót, þar sem venjulega keppa fullorðnir á parketgólfi. Því má…Lesa meira