Gísli Marteins var glaður með afla dagsins. Ljósm. af.

Gott á handfærum en slagt á línu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gísli Marteinsson sjómaður í Ólafvík var glaður í bragði í gær þegar hann kom að landi á báti sínum Glaði SH. Eftir langan óveðursafla komust smærri bátar loks á sjó og var afli góður hjá þeim bátum sem róa á handfærum. Gísli var með þrjú tonn af flottum þorski. Handfærabáturinn Hilmir SH var með 1,5 tonn og Katrín II SH með um eitt tonn.\r\n\r\nHinsvegar var lítið hjá línubátum og kenna menn um að mikið af loðnu er nú í Breiðafirði og lítur þorskurinn því ekki við beitunni. Netabáturinn Bárður SH heldur áfram að mokfiska og landaði 70 tonnum í gær í tveimur löndunum. Vonast sjómenn nú eftir því að veður fari að skána og segja að nóg sé komið af ótíð í bili.",
  "innerBlocks": []
}
Gott á handfærum en slagt á línu - Skessuhorn