
Fjaðurstafir og sortulyngsblek.
Hvað eru skinnhandrit og af hverju þarf að læsa þau niður?
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Dagana 21. til 24. mars fær miðstig nokkurra grunnskóla á Vesturlandi óvenjulega heimsókn. Þar er á ferðinni kynning á sjálfum handritunum undir heitinu; Bál tímans - kveikjum ljós um miðaldahandritin! Bók Arndísar Þórarinsdóttur er þungamiðja kynningarinnar sem höfundurinn annast ásamt Evu Maríu Jónsdóttur miðaldafræðingi. Það er List fyrir alla sem sendir þessa fulltrúa Árnastofnunar sem varðveitir handritin fyrir íslenska þjóð og umheiminn allan. Auk skólaheimsóknanna verða haldnar tvær handritasmiðjur þar sem hægt verður að setja sig í spor skrifara miðalda.\r\n\r\nFyrri smiðjan verður á Amtsbókasafninu á Stykkishólmi miðvikudaginn 23. mars kl. 15:30 og sú síðari í Landnámssetrinu í Borgarnesi laugardaginn 26. mars kl. 14:00. Nemendur geta komið ásamt fjölskyldum sínum og fengið að prófa að skrifa með fjaðurstaf á skinn auk þess að fræðast um bókagerð á miðöldum. Einnig verða til sýnis endurgerðir af frægum skinnhandritum. Smiðjurnar standa í hálfa aðra klukkustund og hægt er að koma hvenær sem er innan þeirra tímamarka.\r\n\r\nÁrið 1971 varð sá merkisatburður að Danir afhentu Íslendingum Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða. Þetta var tæpum þrjátíu árum eftir að landið fékk sjálfstæði frá herraþjóðinni. Samt voru margir sem litu á þetta sem táknrænan endapunkt á því ferli sem leiddi til sjálfstæðis þjóðarinnar. Árnastofnun minntist þessa hálfrar aldar afhendingarafmælis með því að efna til samtals við unga fólkið og almenning í landinu með margvíslegum hætti, s.s. skólaheimsóknum, handritasamkeppni, sjónvarpsútsendingu úr Hörpu og bókaútgáfu.\r\n\r\nHeimsókn Evu Maríu og Arndísar kemur í framhaldi af ferðalagi Snorra Mássonar og Jakobs Birgissonar til tæplega 50 valinna grunnskóla á vegum Árnastofnunar á síðasta ári. Því til viðbótar heimsækja þær nú einnig menningarhús og halda smiðjur þar sem þær segja á skemmtilegan hátt frá handritunum. Smiðjurnar henta öllum, en fjölskyldur með börn eru sérstaklega boðnar velkomnar til að kynnast þessum gersemum Íslands sem gegna svo veigamiklu hlutverki í bókmenntasögu heimsins.\r\n\r\nÞess má að lokum geta að Reynir Tómas Geirsson fv. yfirlæknir mun flytja frásögn sína af Bayeux reflinum í Frakklandi í Landnámssetrinu 26. mars kl. 16.00, þar sem hann mun sérstaklega höfða til ungs fólks þó sýningin eigi erindi við alla. Er þetta vel við hæfi í beinu framhaldi umfjöllunar um handritin og segja má að það verði sannkölluð ungmennahátíð í Landnámssetrinu þessa helgi.",
"innerBlocks": []
}