Fréttir

true

Tríóið Sírajón heldur tónleika í Vinaminni

Tríóið Sírajón kemur fram á tónleikum Listafélagsins Kalmans næstkomandi fimmtudagskvöld klukkan 20 í Vinaminni á Akranesi. Tríóið skipa þau Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari, Einar Jóhannesson klarínettuleikari og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanóleikari. Sviðstónlist úr leikhúsinu rammar inn efnisskrá Tríós Sírajóns með mörgum stuttum og hnyttnum þáttum í verkum Poulencs og Hjálmars H. Ragnarssonar. Þar á milli flytja…Lesa meira

true

Vegir eru víða illa farnir eftir veturinn

Mjög víða eru þjóðvegir, sem og götur í þéttbýli, illa farnir eftir tíðarfarið í vetur. Vegfarendur kannast við slitlagsskemmdir og jafnvel djúpar og varasamar holur sem víða hafa myndast í leysingunum. Sé óvarlega ekið er hægt að skemma bæði hjólbarða og felgur. Starfsmenn Vegagerðarinnar eru því í önnum þessa dagana við viðgerðir. Töluvert er af…Lesa meira

true

Söfnuðu fyrir Rauða krossinn í Úkraínu

Þessar ungu og brosmildu stúlkur komu færandi hendi í dag og afhentu Rauða krossinum á Akranesi samtals 62.500 krónur sem þær höfðu safnað til styrktar starfi Rauða krossins í Úkraníu. Þær heita: Jófríður Jara Sturludóttir, Sigurveig Sara Elvarsdóttir, Maren Rún Jónsdóttir, Hekla María Davíðsdóttir, Regína Rún Hauksdóttir og Guðrún Margrét Halldórsdóttir. Rauði krossinn á Akranesi…Lesa meira

true

Upplýsingar til þeirra sem vilja styðja Úkraínufólk á stríðstímum

Mikill velvilji er í samfélaginu vegna ástandsins í Úkraínu og nágrannalöndum þess sem hafa tekið á móti fólki á flótta. Á sérstöku vefsvæði þar sem tekin eru saman viðbrögð íslenskra stjórnvalda við innrás Rússlands í Úkraínu er að finna upplýsingar um hvernig einstaklingar geta veitt stuðning til Úkraínu þannig hann nýtist sem best. Meðfylgjandi eru upplýsingar…Lesa meira

true

Ólsari góður í tippinu

Það var Ólafsvíkingur sem var með alla leikina 13 rétta á enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og vann rúmar 930 þúsund krónur. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að hann var með sex leiki tvítryggða og sjö með einu merki og kostaði seðillinn 896 krónur. Fast á eftir honum kom Siglfirðingur, einnig með 13 rétta…Lesa meira

true

Raflínustrengur slitnaði ítrekað

Rafmagnsleysis varð vart sunnan Búðardals í Dölum á laugardagskvöld og fram eftir aðfararnótt sunnudags. Vakti það nokkra undrun íbúa, þar sem veðrið var venju fremur gott og engar tilkynningar höfðu borist um mögulegar truflanir. Laxárdalur, Haukadalur, Miðdalir og Skógarströnd misstu rafmagn á tímabili á laugardagskvöldið, en eftir miklar prófanir og inn- og útslátt rafmagns kom…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði á móti Hetti fyrir austan

Skallagrímur fór í langferð síðasta föstudag og lék gegn liði Hattar í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í MVA-höllinni á Egilsstöðum. Leikurinn var jafn í byrjun, um miðbik fyrsta leikhluta var staðan 11:11 en þá skoruðu heimamenn ellefu stig í röð og staðan allt í einu 22:11 fyrir Hetti. Staðan breyttist…Lesa meira

true

Misjafnt gengi Vesturlandsliðanna í Lengjubikarnum í knattspyrnu um helgina

Skagamenn léku í hádeginu á laugardaginn í Akraneshöllinni gegn Lengjudeildarliði Fjölnis í Lengjubikarnum og unnu 3-1. Steinar Þorsteinsson og Gísli Laxdal Unnarsson komu Skagamönnum í 2-0 eftir rúman 20 mínútna leik áður en Baldvin Þór Berndsen minnkaði muninn fyrir gestina skömmu fyrir leikhlé. Gísli Laxdal gulltryggði sigur ÍA á 65. mínútu og eru þeir efstir…Lesa meira

true

Drangey kom til löndunar í Grundarfirði

Í gærdag kom togarinn Drangey SK 2 til hafnar í Grundarfirði til löndunar. Þetta glæsilega skip lagðist að nýja hafnarkantinum þar sem vöruflutningabílarnir biðu þess í röðum að flytja aflann norður í vinnsluna. Skipið stoppaði aðeins í nokkrar klukkustundir áður en það hélt aftur út á miðin. Alls fóru rúmlega 116 tonn á land og í…Lesa meira

true

Glímuveisla í Búðardal

Núna um liðna helgi var sannkölluð glímuveisla í Búðardal þar sem Glímufélag Dalamanna og Glímudeild Njarðvíkur sameinuðu krafta sína í Dalabúð og héldu sameiginlegar æfingar fyrir börn og ungmenni. Hópurinn æfði saman íslenska glímu og deildu þekkingu og reynslu sín á milli. Glímudeild Njarðvíkur heldur einnig uppi öflugu starfi í júdó, backhold og brasílísku Jii…Lesa meira