Fréttir

true

Aþena lagði Stjörnuna í spennandi leik

Hið unga lið Aþenu-UMFK tók í gær á móti liði Stjörnunnar úr Garðabæ í 1. deild kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Jafnt var á flestum tölum í fyrsta leikhluta en þegar rúmlega mínúta var eftir var Aþena komin með níu stiga forskot, 20:11. Gestirnir úr Garðabæ náðu hins vegar…Lesa meira

true

Nauðsynlegt að ríkið fjárfesti í nýrri og öflugri ferju

Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólms síðastliðinn fimmtudag var tekið fyrir málefni Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafði óskað eftir umsögn Stykkishólmsbæjar um tillögu til þingsályktunar um kaup á nýrri Breiðafjarðarferju. Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar segist taka undir þingsályktunina en vill leggja áherslu á umhverfisvæna kosti bæði sem bráðabirgðalausn og til lengri tíma. „Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar vekur athygli á…Lesa meira

true

Skallagrímur náði sigri gegn Hamri

Skallagrímur og Hamar mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Hveragerði. Skallagrímur byrjaði mun betur í leiknum og komst í 5:17 eftir rúmlega fimm mínútna leik. Skallagrímur hélt forskotinu út fyrsta leikhlutann og staðan 20:32. Í byrjun annars leikhluta náðu heimamenn að minnka muninn í fimm stig og…Lesa meira

true

Víkingur kom í nótt með loðnu

Um klukkan 4:30 í nótt kom Víkingur AK inn til löndunar á Akranesi með loðnufarm úr Breiðafirði. Hryssingslegt veður var þegar skipið kom inn, hvasst og slagveðursrigning. Skipið þurfti að fara í stutta löndunarbið þar sem enn var verið að landa úr Svani RE. Því lauk á sjöunda tímanum í morgun og sigldi Svanur þá…Lesa meira

true

Tóku þátt í Norðurlandamótinu í klifri

Um liðna helgi fór fram Norðurlandamót ungmenna í klifri. Mótið var haldið í Bison Boulders í Kaupmannahöfn og tók stór hópur klifrara frá Íslandi þátt, þar af sjö klifrarar frá Klifurfélagi ÍA. Flest þeirra voru að klifra á erlendum vettvangi í fyrsta skipti og því var mikil spenna í hópnum. Undankeppnin fór fram laugardagsmorguninn 26.…Lesa meira

true

Bálhvasst þar sem vindur stendur af fjöllum

Nú er slæmt ferðaveður á vegum þar sem vindur stendur af fjöllum. Áttin er suðaustlæg. Laust fyrir klukkan tíu í morgun fór vindur í hviðum upp í 56 metra á sekúndu við Hafnarfjall og nú slær hann upp í 44 metra/sek. Við slíkar aðstæður er varhugavert að vera á ferðinni. Björgunarfélag Akraness hefur verið kallað…Lesa meira

true

Minningarathöfn um áhöfn Krossness SH-308

Miðvikudaginn 23. febrúar síðastliðinn voru þrjátíu ár liðin frá því að togarinn Krossnes SH-308 fórst á Halamiðum og með honum þrír menn. Togarinn var gerður út frá Grundarfirði og var slysið eðli málsins samkvæmt þungt högg fyrir samfélagið. Á þessum tímamótum í síðustu viku hittust eftirlifandi áhafnarmeðlimir og aðstandendur við minnismerki þeirra sem fórust, en…Lesa meira

true

Sólardagar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Nemendur og kennarar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði brutu upp skólastarfið með svokölluðum sólardögum í síðustu viku. Þá var dagskráin frekar óhefðbundin og bryddað upp á ýmsum nýjungum sem varla teljast til hefðbundins námsefnis. Til dæmis var keppt í hinum ýmsu greinum eins og boccia, pílukasti, skák, félagsvist og ýmsum spilum. Krökkunum gafst tækifæri á…Lesa meira

true

Asahláka á öskudegi

Það gefur ekkert sérlega vel fyrir börn í söng- og nammiferðir í dag. Gul viðvörun er í gildi fyrir Faxaflóasvæðið fram til klukkan þrjú í dag; spáð suðaustan 15-23 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll. Einnig verður rigning og talsverð snjóbráð og er fólk hvatt til að huga að niðurföllum. Í dag þarf því allt…Lesa meira

true

Torgið hárstofa verður opnuð á morgun

Torgið hárstofa verður opnuð við Akratorg á Akranesi á morgun, fimmtudaginn 3. mars. Það eru þær Ólöf Una Ólafsdóttir og Ína Dóra Ástríðardóttir sem opna stofuna. Þær voru á fullu að undirbúa opnun þegar blaðamaður Skessuhorns leit inn til þeirra síðastliðinn mánudag. Ólöf og Ína Dóra eru Skagamönnum vel kunnar en þær hafa báðar starfað…Lesa meira