{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Um klukkan 4:30 í nótt kom Víkingur AK inn til löndunar á Akranesi með loðnufarm úr Breiðafirði. Hryssingslegt veður var þegar skipið kom inn, hvasst og slagveðursrigning. Skipið þurfti að fara í stutta löndunarbið þar sem enn var verið að landa úr Svani RE. Því lauk á sjöunda tímanum í morgun og sigldi Svanur þá aftur til veiða en dæling hófst úr Víkingi. Meðfylgjandi mynd tók Guðmundur St. Valdimarsson þegar skipið kom í nótt.\r\n\r\nVinnsla og frysting loðnuhrogna hófst á Akranesi á mánudaginn. Nú vinna um hundrað manns við frystingu og bræðslu hjá Brimi á Akranesi.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_51592\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-51592 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/03/Forsidumynd_09-600x405.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"405\" /> Frysting loðnuhrogna hófst á Akranesi á mánudaginn, en þessi mynd var tekin í gær. Hrognin eru eins og kunnugt er langverðmætasta afurð loðnunnar og verður nú á næstu vikum allt kapp lagt á frystingu þeirra. Loðnugöngur eru nú á hraðri leið vestur fyrir landið til hrygningar. Ljósm. vaks[/caption]",
"innerBlocks": []
}