
Ólöf Una Ólafsdóttir og Ína Dóra Ástríðardóttir ætla að opna Torgið hárstofu á Akranesi á morgun, fimmtudaginn 3. mars. Ljósm. arg.
Torgið hárstofa verður opnuð á morgun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Torgið hárstofa verður opnuð við Akratorg á Akranesi á morgun, fimmtudaginn 3. mars. Það eru þær Ólöf Una Ólafsdóttir og Ína Dóra Ástríðardóttir sem opna stofuna. Þær voru á fullu að undirbúa opnun þegar blaðamaður Skessuhorns leit inn til þeirra síðastliðinn mánudag. Ólöf og Ína Dóra eru Skagamönnum vel kunnar en þær hafa báðar starfað um árabil á Hárhúsi Kötlu. „Þar höfum við lengi unnið saman og vitum því að við vinnum vel saman,“ segja þær. Ína Dóra ólst upp í Hvalfjarðarsveit en hefur búið á Akranesi síðan hún var 16 ára. Hún lauk námi í hárgreiðslu árið 1999 og starfaði við það fag þar til fyrir fjórum árum þegar hún ákvað að taka smá pásu. Ólöf Una er fædd og uppalin á Akranesi en flutti til Reykjavíkur árið 1993 þar sem hún lærði hárgreiðslu og vann um tíma. Þá flutti hún til Vestmannaeyja í tíu ár og rak þar hárstofu áður en hún flutti aftur heim á Akranes árið 2009.\r\n\r\n<em>Nánar er rætt við þær stöllur í Skessuhorni sem var að koma út.</em>",
"innerBlocks": []
}