
Aðstandendur og áhöfn stilltu sér upp við minnismerkið á þessum fallega degi. Ljósm. tfk.
Minningarathöfn um áhöfn Krossness SH-308
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Miðvikudaginn 23. febrúar síðastliðinn voru þrjátíu ár liðin frá því að togarinn Krossnes SH-308 fórst á Halamiðum og með honum þrír menn. Togarinn var gerður út frá Grundarfirði og var slysið eðli málsins samkvæmt þungt högg fyrir samfélagið. Á þessum tímamótum í síðustu viku hittust eftirlifandi áhafnarmeðlimir og aðstandendur við minnismerki þeirra sem fórust, en það er staðsett í Setbergskirkjugarði við Grundarfjörð. Athöfnin var falleg og byrjaði á því að Hafsteinn Garðarsson, sem var skipstjóri í þessum örlagaríka túr, fór með nokkur minningarorð áður en séra Aðalsteinn Þorvaldsson sóknarprestur í Grundarfirði tók við. Að lokum fór Sigurður Ólafur Þorvarðarson, sem var stýrimaður á þessum tíma, með sjóferðabænina áður en farið var á Kaffi 59 þar sem boðið var upp á kaffi og kökur.\r\n\r\n<em>Ítarlega er sagt frá minningarathöfninni og sjóslysið rifjað upp í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}