Sólardagar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nemendur og kennarar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði brutu upp skólastarfið með svokölluðum sólardögum í síðustu viku. Þá var dagskráin frekar óhefðbundin og bryddað upp á ýmsum nýjungum sem varla teljast til hefðbundins námsefnis. Til dæmis var keppt í hinum ýmsu greinum eins og boccia, pílukasti, skák, félagsvist og ýmsum spilum. Krökkunum gafst tækifæri á að spreyta sig í vöfflubakstri, rafíþróttum, klifri og karate svo eitthvað sé nefnt. Sólardagarnir tókust vel og voru þeir kærkomin tilbreyting frá náminu.\r\n\r\n<em>Sjá má fleiri sólardagamyndir Tomma ljósmyndara Skessuhorns í blaði vikunnar.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Sólardagar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga - Skessuhorn