Fréttir

true

Talning ferðamanna í Dalabyggð

Á fundi atvinnumálanefndar Dalabyggðar síðastliðinn þriðjudag var tekið fyrir erindi Ferðamálastofu varðandi hentugan stað fyrir uppsetningu teljara en enginn teljari er nú til staðar í Dalabyggð. Ferðamálastofa stendur fyrir talningu á ferðamannastöðum víða um landið. Talningin fer fram með sjálfvirkum teljara sem telur gangandi vegfarendur með mikilli nákvæmni. Miðað er við að telja á stöðum…Lesa meira

true

Óvissustig Almannavarna vegna slæmrar veðurspár víða um land

Vegna veðurs sem er fram undan víða um land ákvað Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestmannaeyjum og Vestfjörðum að lýsa yfir óvissustigi Almannavarna frá klukkan 08:00 í dag, föstudaginn 25. febrúar.  Samhæfingarmiðstöð Almannavarna hefur verið starfrækt frá klukkan 8:00 og verður fram eftir degi. Samkvæmt Veðurstofu Íslands verður versta veðrið…Lesa meira

true

Fella niður skóla í dag vegna veðurs

Ákveðið var að fella niður skóla í uppsveitum Borgarbyggðar og í Hvalfjarðarsveit vegna óveðurs í dag. En gul viðvörun er nú í gildi á þessu svæði og verður viðvörunin appelsínugul rétt fyrir hádegi í dag. Þá er einnig hálka eða hálkublettir víða á vegum.Lesa meira

true

Sagnaskemmtan á Skildi í Helgafellssveit

Rithöfundarnir Einar Kárason og Óttar Guðmundsson munu laugardaginn 26. febrúar klukkan 14 ræða meðal annars um Eyrbyggju og Sturlungu eins og þeim einum er lagið. Samkoman verður í Skildi í Helgafellssveit. Einar og Óttar hafa báðir, hvor á sinn hátt, gert Íslendingasögurnar að umfjöllunarefni í bókverkum sínum undanfarin misseri. Einar, einn ástælasti höfunda landsins, hefur…Lesa meira

true

Hafa aflétt öllum sóttvarnaaðgerðum

Öllum opinberum sóttvarnaaðgerðum var aflétt á miðnætti í gærkvöldi bæði innanlands og á landamærunum. Eru því engar takmarkanir nú í gildi á samkomum og einnig hefur fallið niður krafa um einangrun þeirra sem greinast með kórónuveiruna. Þá er ekki lengur boðið upp á PCR próf nema læknir telji þörf á því, þess í stað er…Lesa meira

true

Framkvæmdir ganga vel á Húsafelli

Framkvæmdir við nýtt fjörutíu húsa hverfi á Húsafelli í Borgarfirði ganga vel að sögn Bergþórs Kristleifssonar. Að jafnaði eru 20-26 starfsmenn sem koma að verkefninu. Fjórtán hús hafa verið reist og eru fimm nálægt því að verða fokheld. Spurður hvenær megi búast við því að fyrstu eigendur geti flutt í sín hús segist Bergþór ekki…Lesa meira

true

Tóku forskot á bollu-sæluna

Starfsfólk á Kaffi 59 í Grundarfirði tók forskot á sæluna og bauð upp á bollukaffi á sunnudaginn. Bolludagurinn sjálfur er ekki fyrr en mánudaginn 28. febrúar og því var ekki seinna vænna en að skella í bollur. Grundfirðingar tóku framtakinu vel og voru duglegir að mæta og gæða sér á nýbökuðum bollum. Eflaust verður þó…Lesa meira

true

Hafa kært alvarlega vanrækslu á búfé

Matvælastofnun hefur kært til lögreglu alvarlega vanrækslu á búfé á nautgripa- og sauðfjárbúi á Vesturlandi, en frá þessu er greint á heimasíðu Matvælastofnunar. Þar er sagt að um sé að ræða eitt umfangsmesta og alvarlegasta dýravelferðarmál sem hefur komið upp hér á landi. „Á þriðja tug nautgripa og um 200 fjár, auk 5 hænsna, drápust…Lesa meira

true

Vesturlandsdeildin hefst í kvöld

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum hefst klukkan 19 í kvöld með keppni í fjórgangi. Keppt verður í Faxaborg, reiðhöllinni í Borgarnesi. Fyrir tveimur árum varð að blása mótið af vegna heimsfaraldurs og á síðasta ári gafst áhorfendum ekki kostur á að fylgjast með mótinu á staðnum. Í kvöld gefst áhorfendum kostur á að fjölmenna í stúkuna og…Lesa meira

true

Viðvörunin á morgun orðin appelsínugul

Eins og Skessuhorn greindi frá í morgun er enn ein óveðurslægðin að nálgast landið á morgun. Viðvörunin sem var gul í morgun hefur verið hækkuð í appelsínugula viðvörun við Breiðafjörð og Faxaflóa. Spáð er suðaustan stormi eða roki 23-28 m/s og snörpum vindhviðum við fjöll. Talsverð slydda og síðar rigning og það hlýnar í veðri…Lesa meira