{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eins og Skessuhorn greindi frá í morgun er enn ein óveðurslægðin að nálgast landið á morgun. Viðvörunin sem var gul í morgun hefur verið hækkuð í appelsínugula viðvörun við Breiðafjörð og Faxaflóa. Spáð er suðaustan stormi eða roki 23-28 m/s og snörpum vindhviðum við fjöll. Talsverð slydda og síðar rigning og það hlýnar í veðri svo mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón. Viðvörunin tekur gildi rétt fyrir hádegi og er fram eftir degi. Appelsínugul viðvörun þýðir að miðlungs eða miklar líkur eru á að veður geti valdið miklum áhrifum í samfélaginu og það getur valdið tjóni og/eða slysum. Mögulega gæti veðrið ógnað lífi ef ekki er farið varlega.",
"innerBlocks": []
}
Viðvörunin á morgun orðin appelsínugul - Skessuhorn