Fréttir

true

Breytingar á rannsóknum til greiningar á Covid-19

Eins og áður hefur komið fram í fréttum, þá var hámarks PCR-greiningargetu vegna Covid-19 náð fyrir nokkru síðan. Þetta hefur leitt til þess að bið eftir niðurstöðu úr PCR-greiningum er orðin allt að 2-3 sólarhringar sem er óásættanlegt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti sóttvarnalæknis. „Til að bregðast við þessu þá hefur verið ákveðið…Lesa meira

true

Slæmt veður í dag á öllu norðvesturhorninu

Mjög slæmt veðurútlit er fyrir daginn við Breiðafjörð og á Vestfjörðum og er appelsínugul viðvörun í gildi til miðnættis í kvöld. Við Breiðafjörð verður norðaustan stormur eða rok með vindhraða á bilinu 18 – 25 m/s og talsverð snjókoma og skafrenningu með takmörkuðu skyggni norðantil á svæðinu. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll.…Lesa meira

true

Næg verkefni fyrir smíðafyrirtæki á Akranesi

Fram kemur í Húsnæðisáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2022 að umtalsverð eftirspurn hefur verið eftir öllum tegundum íbúðarhúsnæðis í bæjarfélaginu og hefur Akraneskaupstaður átt í fullu fangi við við að mæta þeirri eftirspurn. Nú er staðan sú að metfjöldi íbúða er í byggingu og framundan er úthlutun eða sala á lóðum á Sementsreit, Dalbrautarreit og Skógarhverfi…Lesa meira

true

Það var ekki aftur snúið eftir fyrstu veiðiferðina

Einar Vignir Einarsson hefur verið til sjós í hartnær fimmtíu ár. Sjómennskuna byrjaði hann á grásleppuveiðum með föður sínum og frá 16 ára aldri hefur hann verið nánast samfellt til sjós. Ferillinn er fjölbreyttur. Hann hefur verið á fiskiskipum, trillum og strandferðaskipum við Íslandsstrendur. Olíu- og flutningaskipum hefur hann stýrt um heimsins höf og svo…Lesa meira

true

Grundfirðingar án læknis í óveðrum

Mánudaginn 7. febrúar, þegar óveður gekk yfir landið, voru Grundfirðingar án læknis og þurftu að treysta á að komast yfir í nærliggjandi sveitarfélög til að sækja heilbrigðisþjónustu. Þennan dag vildi svo illa til að nokkur óhöpp eða vinnuslys urðu í bænum, þar af þurfti að flytja einn fluttur suður með sjúkrabíl. „Það sem við vorum…Lesa meira

true

Góð aðsókn í Fab Lab smiðju Vesturlands

Búið er að gefa út ársskýrslu Fab Lab smiðju Vesturlands í Breið nýsköpunarsetri fyrir árið 2021. Alls heimsóttu 1.115 manns smiðjuna á því starfsári. „Markmið með starfsemi Fab Lab smiðjanna er að auka þekkingu skólafólks og almennings á persónumiðaðri framleiðslu og stafrænum framleiðsluaðferðum,“ segir í skýrslunni. „Verkefninu er ætlað að auka áhuga á verk- og…Lesa meira

true

Veðurstöð á Bröttubrekku liggur niðri eftir ofsaveðrið í gær

Mastur fyrir veðurstöð Vegagerðarinnar á Bröttubrekku brotnaði og datt niður í gærkvöldi. Vindhviður fóru í 58 m/s á svæðinu í gærkvöldi en síðustu mælingar frá stöðinni eru frá því kl. 23:10 í gærkvöldi en þá var vindhraði 23,5 m/s og vindhviður 41,2 m/s. Að sögn Sæmundar Kristjánssonar hjá Vegagerðinni er þó ekki víst hvort mastrið…Lesa meira

true

Snæbjörn Gíslason er 104 ára í dag

Snæbjörn Gíslason á Akranesi er elstur núlifandi karlmanna á Íslandi. Hann er 104 ára í dag, fæddur 22. febrúar 1918. Snæbjörn er hógvær og vill helst ekki gera mikið úr þessum áfanga, en starfsfólk á Hjúkrunarheimilinu Höfða, þar sem hann býr, fékk leyfi hans til að senda Skessuhorni mynd og smá frétt í tilefni dagsins.…Lesa meira

true

Þakdúkur fauk af gamla héraðsskólahúsinu

Í rokinu í gærkvöldi losnaði og fauk þakdúkur af húsi Héraðsskólans í Reykholti, af þeim hluta sem nú hýsir varaeintakasafn Landsbókasafns Íslands. Að sögn heimamanna er ekki talin hætta á að regnvatn komist inn í húsið, en undir dúknum er timbur og steypt þakplata. Gengið verður í lagfæringar þegar veður gengur niður.Lesa meira