
Snæbjörn Gíslason uppáklæddur í morgun og tilbúinn að fagna deginum.
Snæbjörn Gíslason er 104 ára í dag
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Snæbjörn Gíslason á Akranesi er elstur núlifandi karlmanna á Íslandi. Hann er 104 ára í dag, fæddur 22. febrúar 1918. Snæbjörn er hógvær og vill helst ekki gera mikið úr þessum áfanga, en starfsfólk á Hjúkrunarheimilinu Höfða, þar sem hann býr, fékk leyfi hans til að senda Skessuhorni mynd og smá frétt í tilefni dagsins. Snæbjörn fagnar deginum með afmælisköku og kaffi - og hver veit nema nokkrir gestir líti við í dag. Starfsfólk Höfða vill senda Snæbirni innilegar hamingjuóskir í tilefni dagsins.\r\n\r\nSnæbjörn er fæddur á Litla-Lambhaga í Skilmannahreppi 22. febrúar 1918, sonur Gísla Gíslasonar bónda og kennara og Þóru Sigurðardóttur. Hann átti sjö systkini sem sum hafa náð háum aldri. Kristín systir hans náði 100 ára aldri, Elísa varð 96 ára og Þórður 97 ára. Snæbjörn giftist ekki og á ekki börn, en systkinabörn hans fylgjast með honum. Snæbjörn starfaði við byggingavinnu en var lengstan sinn starfsaldur í fiskvinnslu hjá HB&Co. Síðastliðin átta ár hefur hann búið á Hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi.\r\n\r\nÞað eru ekki margir Íslendingar sem hafa lifað jafnmarga stórviðburði á ævi sinni. Snæbjörn er fæddur frostaveturinn mikla, nokkrum mánuðum áður en Katla gaus og Ísland fékk fullveldi. Hann hefur lifað tvær heimsstyrjaldir svo ekki sé talað um allar þær miklu breytingar á lifnaðarháttum Íslendinga sem orðið hafa á þessum 104 árum.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_51295\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-51295 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/Snaebjorn-Gislason-104-ara-i-dag_2-600x409.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"409\" /> Bræðurnir Þórður t.v. og Snæbjörn Gíslasynir að undirbúa síldarsöltun á eyrinni árið 1965 – en Snæbjörn var á þessum tíma 47 ára. Ljósm. Haraldarhús.[/caption]",
"innerBlocks": []
}