Veðurstöð á Bröttubrekku liggur niðri eftir ofsaveðrið í gær
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Mastur fyrir veðurstöð Vegagerðarinnar á Bröttubrekku brotnaði og datt niður í gærkvöldi. Vindhviður fóru í 58 m/s á svæðinu í gærkvöldi en síðustu mælingar frá stöðinni eru frá því kl. 23:10 í gærkvöldi en þá var vindhraði 23,5 m/s og vindhviður 41,2 m/s. Að sögn Sæmundar Kristjánssonar hjá Vegagerðinni er þó ekki víst hvort mastrið hafi brotnað á þessum tíma en rafmagn fór einnig af á svæðinu og gæti það hafa haft áhrif.",
"innerBlocks": []
}
Veðurstöð á Bröttubrekku liggur niðri eftir ofsaveðrið í gær - Skessuhorn