Fréttir

true

Nýtt hringtorg í undirbúningi við Akranesveg

Í fundargerð skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar frá 31. janúar síðastliðinn kemur fram beiðni til Vegagerðarinnar um að hefja ferli við undirbúning að gerð nýs hringtorgs við Akranesveg. Þar segir að Skógahverfið á Akranesi sé í hraðri uppbyggingu og því mikilvægt út frá nokkrum sjónarmiðum að hringtorg komi sem allra fyrst á þessum stað. Í fyrsta…Lesa meira

true

Samráðshópur um öldrunarmál á Vesturlandi kynnti skýrslu sína

Í ársbyrjun 2020 var skipaður samráðshópur um öldrunarmál á Vesturlandi með það markmið að geta staðið undir hækkandi aldri þjóðarinnar. Hópurinn tók til starfa í september sama ár og hélt nýverið kynningu á lokaskýrslu í gegnum Teams fjarfundabúnað. Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmda Brákarhlíðar og formaður samráðshópsins, fór yfir þau verkefni sem hópurinn vann að. Eitt…Lesa meira

true

Slaufunarmenning meðal umfjöllunarefnis á Jafnréttisdögum háskólanna

Slaufunarmenning, stafrænt ofbeldi, stéttskipting í íslensku ljósi, viðhorfsbreytingar tengdar #metoo, frjósemisréttindi fatlaðra kvenna, valdójafnvægi innan íþrótta, textíll og hringrásarkerfi sem jafnréttismál, ljósmyndasýning tengd mannúðarstörfum kvenna og staða jafnréttismála innan háskóla landsins, er meðal þeirra fjölbreyttu umfjöllunarefna sem í boði verða á árlegum Jafnréttisdögum háskólanna á Íslandi. Þeir fara fram dagana 14.-18. febrúar og verða að…Lesa meira

true

Suðaustan stormur og snjókoma á morgun

Á morgun, mánudaginn 14. febrúar, er búið að gefa út gula viðvörun fyrir sunnan- og vestanvert landið. Spáð er suðaustan hvassviðri eða stormi með talsverðri ofankomu. Á spásvæðinu Faxaflóa gengur í suðaustan hvassviðri eða storm, 15-23 m/s um miðjan daginn og staðbundið enn hvassara, eins og t.d. á Kjalarnesi, Reykjanesi og við Hafnarfjall. Snjókoma á…Lesa meira

true

Snæfell í annað sætið eftir sigur á Vestra

Snæfell tók á móti botnliði Vestra frá Ísafirði í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gær og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Snæfell byrjaði betur í leiknum, eftir rúmlega fimm mínútna leik var staðan 14:7 Snæfelli í vil og við lok fyrsta leikhluta 20:13. Í öðrum leikhluta jók Snæfell enn við forskotið og við hálfleiksflautuna…Lesa meira

true

Spáð er hægu vetrarveðri

Veðurfræðingar spá nú, aldrei þessu vant, stilltu vetrarveðri, en frosti einkum inn til landsins. Það er kærkomin tilbreyting frá lægðasúpunni sem gengið hefur yfir landið undanfarnar vikur. Meðfylgjandi drónamyndir voru teknar í dag yfir Akranesi. Hægur vindur er og frost, en margir á ferð til útiveru. Leyfum myndunum að tala sínu máli.Lesa meira

true

Rafmagn af Reykholtsdalslínu

Rafmagnsbilun er í gangi á Reykholtsdalslína í Borgarfirði, en verið er að leita að bilun. Í tilkynningu frá Rarik kemur fram að ef einhver hefur upplýsingar sem gætu hjálpað við bilanaleit þá hafi viðkomandi samband við Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390 Kort af svæði sem talið er vera um að ræða má sjá…Lesa meira

true

Oliver Stefánsson semur við Skagamenn

Knattspyrnumaðurinn Oliver Stefánsson hefur gengið til liðs við ÍA frá IFK Norrköping á lánssamningi sem gildir út keppnistímabilið 2022. Oliver segir á fésbókarsíðu ÍA að það sé gott að vera kominn aftur í ÍA og honum hlakki til sumarsins. Þá segir Jón Þór Hauksson, nýráðinn þjálfari Skagamanna, að Oliver sé góður liðsstyrkur og að þeir…Lesa meira

true

Stórtap Skallagríms gegn Fjölni

Skallagrímur og Fjölnir áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Gestirnir úr Grafarvogi byrjuðu betur í fyrsta leikhluta og eftir rúmlega fimm mínútna leik var staðan 8:14 þeim í vil. Heimamenn náðu þá að minnka muninn í eitt stig áður en Fjölnir bætti aftur…Lesa meira

true

Dregið í forkeppni Mjólkurbikarsins – Stefnir í Vesturlandsslagi

Á fimmtudaginn var dregið í forkeppni Mjólkurbikars karla og kvenna í knattspyrnu en um er að ræða fyrstu tvær umferðirnar. Í Mjólkurbikar kvenna mætir ÍA liði Fjölnis og fer leikurinn fram í Akraneshöllinni föstudaginn 29. apríl klukkan 19. Sigurvegarinn úr þessum leik mætir síðan annað hvort Sindra eða KH í leik sem fer fram sunnudaginn…Lesa meira