
Snæfell að fagna sigrinum í leikslok. Ljósm. sá
Snæfell í annað sætið eftir sigur á Vestra
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Snæfell tók á móti botnliði Vestra frá Ísafirði í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gær og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Snæfell byrjaði betur í leiknum, eftir rúmlega fimm mínútna leik var staðan 14:7 Snæfelli í vil og við lok fyrsta leikhluta 20:13. Í öðrum leikhluta jók Snæfell enn við forskotið og við hálfleiksflautuna var munurinn á liðunum orðinn 18 stig, 47:29.\r\n\r\nSá munur hélst nokkurn veginn allan þriðja leikhlutann, liðin skoruðu á víxl og staðan 71:49 þegar liðin fengu sér vatnssopa og ræddu málin fyrir síðasta leikhlutann. Um hann miðjan var allt útlit fyrir öruggan stórsigur Snæfells því staðan var orðin 80:58 en þá hrukku gestirnir frá Ísafirði í gang. Á síðustu rúmlega fjórum mínútum leiksins skoruðu þær 14 stig gegn engu gestanna en því miður fyrir þær var það of seint í rassinn gripið. Lokatölur leiksins voru 80:72 fyrir Snæfelli og með þessum sigri komust þær upp í annað sætið í deildinni. Lið Ármann er í efsta sæti með 26 stig og lið Snæfells og ÍR jöfn með 20 stig í öðru og þriðja sæti deildarinnar.\r\n\r\nStigahæstar í liði Snæfells í leiknum voru þær Sianni Martin með 30 stig og 10 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir með 18 stig og Minea Takala með 10 stig. Hjá Vestra var Danielle Shafer með 23 stig, Snæfríður Lillý Árnadóttir með 16 stig og þær Heiður Hallgrímsdóttir og Linda Marín Helgadóttir með 8 stig hvor.\r\n\r\nNæsti leikur Snæfells er gegn toppliði Ármanns föstudaginn 18. febrúar í Kennaraháskólanum í Reykjavík og hefst leikurinn klukkan 19.15.",
"innerBlocks": []
}