Samráðshópur um öldrunarmál á Vesturlandi kynnti skýrslu sína
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í ársbyrjun 2020 var skipaður samráðshópur um öldrunarmál á Vesturlandi með það markmið að geta staðið undir hækkandi aldri þjóðarinnar. Hópurinn tók til starfa í september sama ár og hélt nýverið kynningu á lokaskýrslu í gegnum Teams fjarfundabúnað. Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmda Brákarhlíðar og formaður samráðshópsins, fór yfir þau verkefni sem hópurinn vann að. Eitt af verkefnunum var að auka námskeiðahald fyrir starfsfólk í öldrunarþjónustu og leitaði hópurinn til Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands um að standa fyrir námskeiðum fyrir starfsfólk í öldrunarþjónustu. Haldin voru fimm námskeið sem voru þátttakendum að kostnaðarlausu, en Sóknaráætlun Vesturlands fjármagnaði þau að stærstum hluta. Þá leitaði hópurinn til KPMG um að vinna greiningu á rekstri allra sjö hjúkrunar- og dvalarheimila á Vesturlandi og Guðmundur Hermannsson fór yfir þær niðurstöður á fundinum. Fram kom að ýmis tækifæri eru til að bæta rekstur heimilanna, t.d. með því að skoða möguleikann á að samnýta yfirstjórn heimilanna, afleysingar, lækna, sérfræðinga eða annað sérmenntað starfsfólk t.d. með sameiginlegum ráðningum eða þjónustusamningum.\r\n\r\n<strong>Samvinna á Vesturlandi</strong>\r\n\r\nAð lokum var farið yfir tilraunaverkefni hópsins um aukna samvinnu í öldrunarþjónustu á Vesturlandi. Fyrsta verkefnið sem hópurinn lagði til var að stofnað yrði endurhæfingarteymi og að velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar og HVE færu í samstarf um að samþætta þjónustu við aldraða í heimahúsum, m.a. með stofnun endurhæfingarteymis. Í teyminu myndu starfa iðjuþjálfar, íþróttafræðingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraþjálfarar, sjúkraliðar, félagsliðar og næringarfræðingar. Þannig mætti efla þjónustu við aldraða í heimahúsum og styðja þannig við að notendur geti búið lengur í heimahúsum og þar með minnkað mögulega þjónustuþörf og eftirspurn eftir hjúkrunarrýmum.\r\n\r\n<strong>Miðstöð öldrunarþjónustu</strong>\r\n\r\nAnnað verkefnið sem hópurinn lagði til var nýtt skipulag á rekstri öldrunarmála eða miðstöð öldrunarþjónustu. Þetta verkefni er í umsjón Borgarbyggðar, Skorradalshrepps, Brákarhlíðar og HVE og hefur verkefnið það markmið að skapa grundvöll fyrir eins skilvirka öldrunarþjónustu og kostur er alla daga ársins. Verkefnið snýst um að stofna sameiginlega miðstöð öldrunarþjónustu til að sinna samskiptum og þjónustu við aldraða. Þjónustan væri hugsuð út frá þörfum hvers og eins og til að samþætta félagslega og heilbrigðislega heimaþjónustu, dagvistun, hvíldarinnlagnir, félagsstarf og hjúkrun. Þannig gæti sameiginleg upplýsingagátt sem geymir allar upplýsingar um notandann og hans aðstandendur einfaldað aðgengi að þjónustu á svæðinu.\r\n\r\nEitt verkefnið snéri að nýju skipulagi á rekstri öldrunarmála í Dalabyggð með það markmið að skapa skilvirka og hagkvæma öldrunarþjónustu í sveitarfélaginu allan ársins hring. Í þessu verkefni verður til sameiginleg miðstöð öldrunarþjónustu og sameiginleg rekstrarstjórn fyrir Silfurtún og Fellsenda. Þannig er hægt að samþætta þjónustu við neytandann og stuðla að heildstæðari þjónustu. Þetta verkefni snýst líka um að ná betur um rekstur beggja heimila og auka samstarf þeirra fagaðila sem starfa við stofnanirnar og hjá HVE í Búðardal.\r\n\r\nEinnig lagði hópurinn til verkefni um heilsueflingu og félagslega þátttöku eldri borgara. Markmið verkefnisins er að auka hreyfingu eldri borgara og þar með að bæta heilsu þeirra og auka félagslega þátttöku. Þannig má bæta heilsu eldra fólks svo það geti dvalið lengur í heimahúsi og þar með minnkar eftirspurn eftir hjúkrunarrýmum. Að lokum lagði hópurinn til að gerður yrði samráðsvettvangur öldrunarmála á Vesturlandi. Þannig mætti hagræða í rekstri og bæta þjónustu með auknu upplýsingaflæði milli aðila í öldrunarþjónustu og auknu samstarfi í landshlutanum.",
"innerBlocks": []
}
Samráðshópur um öldrunarmál á Vesturlandi kynnti skýrslu sína - Skessuhorn