Slaufunarmenning meðal umfjöllunarefnis á Jafnréttisdögum háskólanna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Slaufunarmenning, stafrænt ofbeldi, stéttskipting í íslensku ljósi, viðhorfsbreytingar tengdar #metoo, frjósemisréttindi fatlaðra kvenna, valdójafnvægi innan íþrótta, textíll og hringrásarkerfi sem jafnréttismál, ljósmyndasýning tengd mannúðarstörfum kvenna og staða jafnréttismála innan háskóla landsins, er meðal þeirra fjölbreyttu umfjöllunarefna sem í boði verða á árlegum Jafnréttisdögum háskólanna á Íslandi. Þeir fara fram dagana 14.-18. febrúar og verða að stærstum hluta á netinu.\r\n\r\nDagskrá Jafnréttisdaga háskólanna hefur sjaldan verið umfangsmeiri en þessi mikla jafnréttishátíð er nú haldin í fjórtánda sinn. \"Dagskráin endurspeglar vel þann mikla kraft sem er bæði í umræðu um jafnrétti og fjölbreytileika og aktívisma í þágu jafnréttis á Íslandi um þessar mundir. Markmið Jafnréttisdaga er ekki síst að skapa gagnrýna umræðu um þessi mikilvægu málefni og fagna um leið þeim áföngum sem þegar hafa náðst í baráttu fyrir betra samfélagi,\" segir í tilkynningu frá háskólunum.\r\n\r\nDagskráin hefst um hádegisbil í dag, mánudaginn 14. febrúar, en þá koma rektorar háskólanna á Íslandi m.a. saman og ræða áherslur skólanna í málaflokknum og að hverju þurfi að huga í framtíðinni. Í framhaldinu rekur viðburðurinn annan en alls verða þeir vel á þriðja tug áður en Jafnréttisdögum lýkur formlega föstudaginn 18. febrúar. Þátttakendur og fyrirlesarar koma bæði úr háskólasamfélaginu og frá ýmsum stofnunum, fyrirtækjum félagasamtökum og stéttarfélögum svo fátt eitt sé nefnt.\r\n\r\nMeðal þess sem fjallað verður um er hið nýja hugtak slaufunarmenning sem hefur verið mikið í umræðunni, vald, ábyrgð og breytingar á viðhorfum og viðmiðum á tímum #metoo, stéttaskipting og fátækt, hinseginleiki og femínismi, upplifun íþróttakvenna af valdaójafnvægi, birtingarmyndir stafræns ofbeldi og jafnrétti til menntunar. Alþjóðlegum nemendum fjölgar ört í íslenskum háskólum og varpað verður ljósi á reynslu þeirra og upplifun auk þess sem jafnari tækifæri háskólanema til skiptináms verða einnig til umræðu. Þá verður sjónum beint að rétti fatlaðra kvenna til barneigna, sagðar sögur af geðheilbrigði og fjallað um Megas, hinseginleika og friðhelgi listamannsins. Auk þess koma fulltrúar nemenda úr öllum háskólunum sjö saman og ræða brýnustu jafnréttismálin ásamt því sem boðið verður upp á uppstand um jafnréttismál.\r\n\r\nEnn fremur verða tvær sýningar settar upp í tilefni Jafnréttisdaga. Annars vegar er um að ræða ljósmyndasýningu um konur í mannúðarstörfum sem verður í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík alla vikuna og tengist þjóðarráðstefnu um mannúðaraðstoð. Hins vegar verður veggspjaldasýningin „Ég vil vinna“ í húsakynnum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands í Stakkahlíð, en sýningin er ákall nemenda með þroskahömlun um aukin tækifæri á almennum vinnumarkaði. Þá munu þrír doktorsnemar við Háskólann í Reykjavík halda úti hlaðvarpi í vikunni þar sem jafnréttismálin verða krufin út frá ýmsum sjónarhornum.\r\n\r\nÓkeypis er á alla viðburði Jafnréttisdaga og öll velkomin.\r\n\r\n<strong>Dagskrá Jafnréttisdaga í heild sinni má nálgast á Facebook-síðu daganna:</strong> <a href=\"https://www.facebook.com/events/1251243312070131?ref=newsfeed\">https://www.facebook.com/events/1251243312070131?ref=newsfeed</a>\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}
Slaufunarmenning meðal umfjöllunarefnis á Jafnréttisdögum háskólanna - Skessuhorn