
Oliver Stefánsson er kominn aftur í ÍA. Ljósm. kfia
Oliver Stefánsson semur við Skagamenn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Knattspyrnumaðurinn Oliver Stefánsson hefur gengið til liðs við ÍA frá IFK Norrköping á lánssamningi sem gildir út keppnistímabilið 2022. Oliver segir á fésbókarsíðu ÍA að það sé gott að vera kominn aftur í ÍA og honum hlakki til sumarsins. Þá segir Jón Þór Hauksson, nýráðinn þjálfari Skagamanna, að Oliver sé góður liðsstyrkur og að þeir vænti mikils af honum.\r\n\r\nOliver er að jafna sig eftir að hafa fengið blóðtappa rétt fyrir neðan háls en það hélt honum frá keppni stærstan hlutann á síðasta ári. Oliver er sonur knattspyrnukempnanna Stefáns Þórðarsonar og Magneu Guðlaugsdóttir sem léku á sínum ferli með ÍA. Auk Olivers hafa Skagamenn fengið til liðs við sig fyrir tímabilið þá Aron Bjarka Jósepsson, Christian Køhler og Johannes Vall.\r\n\r\nSkagamenn leika í dag sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum í ár gegn Þór Akureyri í Akraneshöllinni og hefst leikurinn klukkan 14. Þá er hann einnig sýndur í beinni á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Sport.",
"innerBlocks": []
}