
Lítið skyggni við vetraraðstæður. Ljósm. úr safni/ kgk.
Suðaustan stormur og snjókoma á morgun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á morgun, mánudaginn 14. febrúar, er búið að gefa út gula viðvörun fyrir sunnan- og vestanvert landið. Spáð er suðaustan hvassviðri eða stormi með talsverðri ofankomu.\r\n\r\nÁ spásvæðinu <strong>Faxaflóa</strong> gengur í suðaustan hvassviðri eða storm, 15-23 m/s um miðjan daginn og staðbundið enn hvassara, eins og t.d. á Kjalarnesi, Reykjanesi og við Hafnarfjall. Snjókoma á köflum og slydda við ströndina og jafnvel rigning á Reykjanesi. Viðbúið er að það geti orðið talsverður skafrenningur, einkum þar sem lítið blotnar í snjó. Veðrið gengur niður aðra nótt.\r\n\r\nÁ spásvæðinu <strong>Breiðafirði</strong> versnar veðrið um kvöldmatarleitið þegar gengur í suðaustan hvassviðri eða storm, 15-23 m/s og staðbundið enn hvassara, einkum á norðanverðu Snæfellsnesi. Snjókoma á köflum og sumsstaðar slydda við ströndina. Viðbúið er að það geti orðið talsverður skafrenningur, einkum þar sem lítið blotnar í snjó.",
"innerBlocks": []
}