Almar Örn Björnsson var með 16 stig og 18 fráköst gegn Fjölni. Hér í leik á móti Hamri fyrr í vetur. Ljósm. glh

Stórtap Skallagríms gegn Fjölni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skallagrímur og Fjölnir áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Gestirnir úr Grafarvogi byrjuðu betur í fyrsta leikhluta og eftir rúmlega fimm mínútna leik var staðan 8:14 þeim í vil. Heimamenn náðu þá að minnka muninn í eitt stig áður en Fjölnir bætti aftur í og var með sex stig í forskot, 21:27, við lok fyrsta leikhluta. Spenna var í öðrum leikhluta framan af þar til undir lok hans að Fjölnir gaf enn á ný í og staðan í hálfleik, 39:50 fyrir Fjölni.\r\n\r\nLítið gekk í þriðja leikhluta hjá heimamönnum að komast inn í leikinn, Fjölnir var alltaf skrefinu á undan og voru komnir með 18 stiga forystu við lok þriðja leikhluta, 61:79. Leikurinn því nánast búinn enda gerðu leikmenn Skallagríms ekkert af viti í fjórða og síðasta leikhluta, þeir hreinlega gáfust upp og lögðu allar sínar árar í bát, lokatölur leiksins 82:111 fyrir Fjölni.\r\n\r\nStigahæstir í liði Skallagríms voru Arnar Smári Bjarnason með 24 stig, Almar Örn Björnsson með 16 stig og 18 fráköst og Davíð Guðmundsson með 13 stig. Hjá Fjölni var Mirza Sarajlija með 40 stig, Ólafur Ingi Styrmisson með 19 stig og 15 fráköst og Brynjar Kári Gunnarsson með 15 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Skallagríms er föstudaginn 18. febrúar gegn Hamri í Hveragerði og hefst leikurinn klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Stórtap Skallagríms gegn Fjölni - Skessuhorn