Fréttir

true

Sveitarstjórn Dalabyggðar fordæmir lokun bankaútibúsins

Sveitarstjórn Dalabyggðar fjallaði um fyrirhugaða lokun útibús Arion banka í Búðardal á fundi sínum í gær. Rifjað var upp að forsvarsmenn bankans hafi fullyrt við síðustu breytingar á starfsemi útibúsins að ekki stæði til að loka útibúinu í Búðardal. Í umræðum benti Kristján Sturluson sveitarstjóri á að í fundargögnum væri afrit af samningi sem gerður…Lesa meira

true

Sóttkví vegna Covid-19 felld brott frá miðnætti í kvöld

Hátt í tíu þúsund manns losna undan sóttkví í kvöld þegar reglur um sóttkví falla brott með reglugerð. Á miðnætti tekur gildi reglugerð um samkomutakmarkanir sem felur í sér tilslakanir, líkt og nánar er tíundað hér að neðan. Í dag verður birt reglugerð sem felur í sér afnám sóttkvíar vegna smita innanlands. Þessar breytingar taka…Lesa meira

true

112 dagurinn er í dag

Áhersla 112 dagsins sem haldinn er um land allt í dag föstudaginn 11. febrúar er að þessu sinni lögð á að vinna gegn hverskonar ofbeldi, en ofbeldishegðun hefur farið vaxandi þau tvö ár sem Covidfaraldurinn hefur geysað. Í tilefni dagsins miðlar Neyðarlínan fræðsluefni á gagnvirku myndbandi um rétt og skilvirk samskipti við neyðarverði sem eru…Lesa meira

true

FVA keppir í Gettu betur í kvöld

Fjölbrautaskóli Vesturlands mætir til leiks í Gettu betur í kvöld í annarri viðureign átta liða úrslita spurningakeppninnar og mætir þar liði Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Mikil spenna er að magnast upp fyrir viðureign kvöldsins, svo mikil að flugeldum var skotið upp í tilefni þess í gærkvöldi á Akranesi. Í fyrstu umferðinni sigraði Verzlunarskóli Íslands lið Fjölbrautaskóla…Lesa meira

true

Leik ÍA og Hrunamanna frestað

Leik ÍA og Hrunamanna í 1. deild karla í körfubolta, sem fara átti fram í kvöld á Flúðum, hefur verið frestað. Leikmenn í hópi Skagamanna eru að losna úr einangrun og sóttkví og ekki þótti fært að leika í kvöld. Þá hefur leik ÍR og Aþenu/UMFK í 1. deild kvenna, sem var á dagskrá á…Lesa meira

true

Fella maígjalddaga bílatrygginga Sjóvá niður

Tryggingafélagið Sjóvá hefur ákveðið að fella niður maígjalddaga lögboðinna ökutækjatrygginga einkabíla viðskiptavina sinna á þessu ári, þótt tryggingarnar verði áfram í fullu gildi. „Sjóva felldi niður iðgjöld ökutækjatrygginga í maí 2020, þegar lokanir í samfélaginu vegna covid stóðu sem hæst. Afkoma fyrirtækisins hefur verið góð og tjónaþróun hagfelld,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Netsamband fór af í Grundarfirði

Starfsmenn Telnets stóðu í ströngu í gær þegar þeir þurftu að að standa í viðgerðum fram í myrkur við Grundargötu í Grundarfirði. Samkvæmt heimasíðu Mílu fór strengur í sundur sem olli því að netsamband rofnaði víða í bænum. Viðgerð lauk um klukkan átta og komst netsamband á að nýju.Lesa meira

true

Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt á einum vettvangi

Stafrænn háskóladagur verður haldinn 26. febrúar næstkomandi frá klukkan 12 til 15. Þá gefst áhugasömum tækifæri til að kynna sér allt háskólanám sem er í boði á landinu á einum vettvangi. Á vefsíðunni http://www.haskoladagurinn.is er nú mögulegt að leita í öllum námsleiðum sem eru í boði í íslenskum háskólum. „Nemendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar og…Lesa meira

true

Verslunin @home flytur á nýjan stað

Í þessari viku skrifuðu eigendur verslunarinnar @home á Akranesi undir kaupsamning á hluta húsnæðisins á Kirkjubraut 54 þar sem áður var til húsa Harðarbakaríið til fjölda ára. Alls er þetta um 160 fermetra húsnæði sem þau festa kaup á. Um er að ræða tvö hólf austan megin á neðstu hæð hússins en í vestari endanum…Lesa meira

true

Vilja taka vel á móti gestum skemmtiferðaskipa á Akranesi

Áfanga- og markaðssvið (Á&M) Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi ásamt Akraneskaupstað og Faxaflóahöfnum taka nú þátt í samstarfsverkefni um gæði í móttöku á skemmtiferðaskipum á Akranesi. Þetta er NORA verkefni sem kemur í gegnum Ferðamálastofu og er samstarfsverkefni við The Association of Arctic Expedition Cruise Operators (AECO), þar sem unnið er með nokkrum höfnum á Íslandi,…Lesa meira