Sóttkví vegna Covid-19 felld brott frá miðnætti í kvöld

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hátt í tíu þúsund manns losna undan sóttkví í kvöld þegar reglur um sóttkví falla brott með reglugerð. Á miðnætti tekur gildi reglugerð um samkomutakmarkanir sem felur í sér tilslakanir, líkt og nánar er tíundað hér að neðan.\r\n\r\nÍ dag verður birt reglugerð sem felur í sér afnám sóttkvíar vegna smita innanlands. Þessar breytingar taka gildi um leið og reglugerðin birtist í Stjórnartíðindum í dag. Þeir sem þegar eru í sóttkví þurfa því ekki að mæta í sýnatöku til að losna og á það einnig við um þá sem áttu að fara í sýnatöku í dag. Þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti verður ekki lengur skylt að sæta smitgát þótt hvatt sé til hennar og þar með fellur jafnframt brott skylda til sýnatöku í lok smitgátar. Reglur um einangrun verða óbreyttar. Reglur um þá sem koma um landamæri Íslands breytast ekki.\r\n\r\nÁ miðnætti tekur gildi ný reglugerð um takmörkun á samkomum sem gildir til og með 25. febrúar. Jafnframt fellur brott sérstök reglugerð um takmörkun á skólastarfi.\r\n\r\nHelstu breytingar á samkomutakmörkunum eru eftirfarandi: \r\n
\r\n \t
Almennar fjöldatakmarkanir: Fara úr 50 í 200 manns innandyra. Fjöldatakmarkanir utandyra falla brott.
\r\n \t
Verslanir: Fjöldatakmarkanir í verslunum falla brott.
\r\n \t
Fjölmennir viðburðir: Heimilt verður að halda 1.000 manna viðburði að því tilskildu að allir sitji í sæti og beri grímu. Heimilt er að halda hlé á viðburðum og selja veitingar án takmarkana.
\r\n \t
Grímunotkun: Aðeins verður skylt að bera grímu ef ekki er hægt að viðhafa 1 metra reglu.
\r\n \t
Hreyfing: Sund- og líkamsræktarstöðvum sem og skíðasvæðum er heimilt að taka á móti gestum með fullum afköstum.
\r\n \t
Íþróttakeppnir og -æfingar: Keppnir og æfingar heimilar með 200 manns í hólfi.
\r\n \t
Skólar: Reglugerð um takmörkun á skólastarfi fellur brott. Þar með gilda almennar reglur um samkomutakmarkanir í skólum, þó með undanteknum til rýmkunar.
\r\n \t
Skólaskemmtanir: Heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.
\r\n \t
Staðir með vínveitingaleyfi: Opnunartími lengdur um eina klukkustund, þ.e. heimilt að taka á móti gestum til miðnættis en allir þurfa að hafa yfirgefið staðinn kl. 01.00.
\r\n

"innerBlocks": []

Sóttkví vegna Covid-19 felld brott frá miðnætti í kvöld - Skessuhorn